Eyþór Arnalds kannaði möguleika á samstarfi við Pírata í borginni

„Það getur bara eng­inn unnið með Sjálf­stæð­is­mönnum fyrr en þeir taka til hjá sjálfum sér,“ segir Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, odd­viti Pírata, sem fór í göngutúr með Eyþóri Arnalds í dag.

Eyþór Arnalds kannaði möguleika á samstarfi við Pírata í borginni

Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, og Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, odd­viti Pírata, hitt­ust í dag og fund­uðu um borg­ar­málin. Raunar sást til þeirra vapp­andi um miðbæ Reykja­víkur.

„Eyþór fór yfir hug­myndir sínar í skipu­lags­málum. Svo ræddum við um lýð­ræð­is­mál, mál­efni aldr­aðra og öryrkja og borg­ar­málin í heild,“ segir Dóra.

Dóra Björt Guð­jóns­dóttirodd­viti Pírata í borg­inni

Aðspurð hvert til­efni fund­ar­ins hafi verið segir Dóra að Eyþór hafi haft sam­band við sig og stungið upp á því að þau myndu hitt­ast í kaffi.

„Ég sagði auð­vitað bara já við því enda höfum við verið að hitta fólk úr öllum áttum. Mér finnst mik­il­vægt að eiga góð sam­skipti við alla flokka.“ 

Fund­ar­inn hafi snú­ist um mögu­lega sam­starfs­fleti. „Já, það var nú að ég held til­gangur fund­ar­ins. Allavega tal­aði hann mikið og vel um Pírata. Miklu betur en Sjálf­stæð­is­menn temja sér að gera opin­ber­lega.“ 

Og er það sem­sagt inni í mynd­inni, að vinna með Sjálf­stæð­is­mönnum í borg­inni? 

„Ég sagði honum bara eins og er að það getur bara eng­inn unnið með Sjálf­stæð­is­mönnum fyrr en þeir taka til hjá sjálfum sér. Ég tal­aði um að flokk­arnir okkar, þ.e. Píratar og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, hefðu mjög ólíkar hug­myndir um vald og nefndi til dæmis Sigríði Andersen og hvernig hún leyfir sér að mis­nota valda­stöðu sína og brýtur lög. Svo­leiðis grefur undan trausti á stjórn­mála­fólki og stofn­unum sam­fé­lags­ins sem vinnur gegn aðal­mark­miði Pírata.“  

„Allavega tal­aði hann mikið og vel um
Pírata. Miklu betur en Sjálf­stæð­is­menn
temja sér að gera opin­ber­lega“

Dóra segir óhugs­andi að vinna með flokkum sem bera ekki virð­ingu fyrir sam­starfs­flokkum í meiri­hluta­sam­starfi, og vísar þá til rík­is­stjórn­ar­sam­starfs Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Vinstri grænna.

„Það er ekki hægt að vinna með fólki sem ber ekki virð­ingu fyrir sam­starfs­flokk­unum, hvað þá flokkum sem virð­ast bein­línis njóta þess að grafa undan sam­starfs­flokkum sínum. En í stuttu máli þá sagði ég bara við hann að sam­starf Pírata og Sjálf­stæð­is­flokks strand­aði ein­fald­lega á þeim sjálfum. Fyrst taka þeir til hjá sér og svo má skoða þetta. Eyþór vildi þá meina að hann væri mað­ur­inn sem myndi breyta þessum flokki. Við Píratar bíðum bara eftir að sjá þess merki og þá eru allir vegir færir. Það er samt ágætt að muna að margir góðir menn hafa ætlað sér að breyta þessum flokki með því að ganga í hann.“ 

Ekki náð­ist í Eyþór Arnalds við vinnslu frétt­ar­innar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2018

ÚttektBorgarstjórnarkosningar 2018

Hags­muna­tengsl borg­ar­full­trúa: Eyþór enn í stjórnum fimm félaga

Eyþór Arnalds situr enn í stjórnum fimm félaga og eru tvö þeirra eign­ar­halds­fé­lög með rúman einn og hálfan millj­arð í eignir. Hann lof­aði að skilja sig frá við­skipta­líf­inu þegar hann vann leið­toga­próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í jan­úar. Oddviti Við­reisnar og fleiri nýir borg­ar­full­trúar sitja í stjórnum félaga.
FréttirBorgarstjórnarkosningar 2018

Vildi ekki verða „hús­þræll“ í vinstri- og miðju­sam­starfi en mynd­aði atkvæða­blokk með Sjálf­stæð­is­flokknum

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, sætir harðri gagn­rýni fyrir að hafa stillt sér upp með Sjálf­stæð­is­flokknum og Mið­flokknum af praktískum ástæðum. „Fram­kvæmd­ar­stjóri borg­ar­stjórn­ar­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins sendi fyrir hönd allrar stjórn­ar­and­stöð­unnar skipan okkar í nefndir,“ sagði Hildur Björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár