Mynd: Heiða Helgadóttir

Ríkisstjórnin vill veikja tekjustofna og draga úr húsnæðisstuðningi en stórauka útgjöld til heilbrigðis- og samgöngumála

Útgjöld og tekjur hins opin­bera munu standa í stað sem hlut­fall af vergri lands­fram­leiðslu næstu árin sam­kvæmt fyrstu fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur.

Útgjöld og tekjur hins opin­bera munu standa í stað sem hlut­fall af vergri lands­fram­leiðslu næstu árin sam­kvæmt fyrstu fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur sem birt­ist á vef Alþingis í dag.

Dregið verður úr skatt­byrði þrátt fyrir útgjalda­aukn­ingu til flestra mála­flokka. Fyrir vikið verður heild­ar­af­koma rík­is­sjóðs lægri en gert var ráð fyrir í fjár­mála­á­ætl­unum fyrri rík­is­stjórna.

Tekju­ráð­staf­anir til lækk­unar verða um 25 millj­arðar líkt og Stundin hafði áður reiknað út á grund­velli fyr­ir­heita sem fram komu í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar. Þarna vega þyngst lækkun tekju­skatts ein­stak­linga og lækkun trygg­inga­gjalds fyr­ir­tækja. 

Samhliða lækkun skatt­pró­sent­unnar í neðra þrepi tekju­skatt­kerf­is­ins er stefnt að heild­ar­end­ur­skoðun tekju­skatts ein­stak­linga og bóta­kerfa „með það að mark­miði að unnt verði að draga úr skatt­byrði og koma á fót heild­stæðu og ein­fald­ara kerfi, ekki síst í þágu tekju­lægri hópa“.

Trygg­inga­gjald mun lækka úr 6,85% í 6,6% árið 2019 og verður virð­is­auka­skattur á bækur afnum­inn sama ár. Loks verður sér­staki banka­skatt­ur­inn lækk­aður úr 0,376% í 0,145%.

Þá stendur enn til að breyta reikni­reglu fjár­magnstekju­skatts­ins í því skyni að verja fjár­magns­eig­endur sér­stak­lega fyrir verð­bólgu­á­hrifum.

Þetta gæti skipt miklu fyrir fjár­sterk­ustu hópa íslensks sam­fé­lags ef ræt­ist úr áhyggjum Seðla­bank­ans og ann­arra aðila af því að minna aðhald í rík­is­fjár­málum muni kynda undir verð­bólgu á næstu árum.

Hækkun kolefn­is­gjalds verður miklu minni en Benedikt Jóhann­es­son, fyr­ir­renn­ari Bjarna Bene­dikts­sonar á stóli fjár­mála­ráð­herra, stefndi að.

Í tíð síð­ustu rík­is­stjórnar var lagt upp með tvö­földun kolefn­is­gjalds­ins. Ný rík­is­stjórn ákvað í stað­inn að hækka það um helm­ing. Ofan á þá hækkun, sem tók gildi í upp­hafi árs, mun gjaldið aðeins hækka um 10% til við­bótar árið 2019 og aftur 10% árið 2020 þrátt fyrir að rík­is­stjórnin hafi sett fram háleit mark­mið um kolefn­is­hlut­laust Ísland. 

Fjár­fest­ingar vaxa umtals­vert á árinu 2019 eða um 13 millj­arða og ná hámarki á árinu 2021. Aukn­ingin er einna mest í sam­göngu- og fjar­skipta­málum en þar verður upp­bygg­ingin meðal ann­ars fjár­mögnuð með arð­greiðslum frá fjár­mála­fyr­ir­tækjum í eigu rík­is­ins. 

Hér má sjá áætl­aða útgjalda­þróun næstu ára í sam­hengi við tölur úr fjár­lögum áranna 2017 og 2018.

Framlög til heil­brigð­is­mála verða í lok tíma­bils­ins um 249 millj­arðar á ári og munu þá hafa auk­ist upp­safnað um 40 millj­arða frá fjár­lögum 2018, eða rúm­lega 19% að raun­virði. Upp­söfnuð aukn­ing fram­laga til félags-, hús­næðis- og trygg­inga­mála nemur 28 millj­örðum á tíma­bil­inu. Framlög til háskóla­stigs­ins hækka um ríf­lega 2,8 millj­arða á tíma­bil­inu sem á að duga til að fram­lög á hvern nem­anda hækki.

Hús­næð­is­stuðn­ingur dregst saman frá fjár­lögum árs­ins 2018 úr 13,4 millj­örðum niður í 11,7 millj­arða árið 2023. Þetta er einkum vegna þess að fram­lög til bygg­ingar leigu­í­búða munu lækka um helm­ing þegar sér­stöku átaki frá 2016 lýkur á næsta ári.

Útgjöld til lista, menn­ingar, íþrótta- og æsku­lýðs­mála drag­ast lít­il­lega saman og jafn­framt fram­lög til lýð­heilsu­m­ála. Þá er ekki gert ráð fyrir sér­stökum við­bót­ar­fram­lögum til barna- og vaxta­bóta­kerf­is­ins. Hækkun útgjalda til mál­efna aldr­aðra sam­ræm­ist kerf­is­lægum vexti bóta­greiðslna vegna fjölg­unar elli­líf­eyr­is­þega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár