Um 500 tonn af eldislaxi drápust hjá Arnarlaxi í síðustu viku

Stjórn­ar­for­maður Arnarlax segir að laxa­dauð­inn sé vissu­lega áhyggju­efni en að gert sé ráð fyrir afföllum í áætl­unum fyr­ir­tæk­is­ins. Umhverf­is­stofnun hefur óskað eftir upp­lýs­ingum um umfang laxa­dauð­ans hjá fyr­ir­tæk­inu.

Um 500 tonn af eldislaxi drápust hjá Arnarlaxi í síðustu viku
Alls um 500 tonn Um 500 tonn af eld­is­laxi drápust hjá Arn­ar­laxi í síð­ustu viku. Myndin er eld­is­laxi í kari á höfn­inni í Tálkna­firði.

Um 500 tonn af dauðum eld­is­laxi voru hreinsuð upp úr eld­iskvíum Arnarlax í Tálkna- og Arn­ar­firði í síð­ustu viku. Þetta segir Kjartan Ólafsson, stjórn­ar­for­maður Arnarlax, í sam­tali við blaðið. „Í mínu höfði eru þetta sirka 500 tonn sem komu upp í síð­ustu viku. Dauðinn getur hafa gerst á tíu til fimmtán dögum þar áður. Við vitum ekki nákvæm­lega hvenær lax­inn drepst.“ Kjartan segir að lax­arnir hafi verið á bil­inu 2 til 3 kíló að þyngd að með­al­tali. Ef gert er ráð fyrir að lax­arnir hafi verið 3 kíló að þyngd má áætla að tæp­lega 170 þús­und laxar hafi drep­ist hjá Arn­ar­laxi í síð­ustu viku. 

Stundin greindi frá laxa­dauð­anum í gær tölur um heild­ar­af­föll voru þá óþekktar. Kjartan segir að reikna megi með að þetta séu afföllin í síð­ustu viku og að í heild­ina hafi um 1.000 þús­und tonn af laxi drep­ist hjá Arn­ar­laxi það sem af er árinu, lang­mest á síð­ustu vikum. „Ég geri ráð fyrir því að dauð­inn núna geti orðið allt að 1500 tonnum sem er um 10 pró­sent af heild­ar­fram­leiðsl­unni hjá okkur. Stór hluti af þessum dauða hefur verið að koma upp á síð­ustu vikum.“   

„Það er ekk­ert hjá Arn­ar­laxi sem þolir ekki dags­ins ljós“

Kjartan segir ástæð­urnar fyrir dauð­anum vera þrjár: kulda, nýrna­veiki og að lax­inn geti  særst þegar verið er að ná honum upp úr kví­unum og að hann geti drep­ist í kjöl­farið. Í gegnum tíð­ina hefur sjáv­ar­kuld­inn við Ísland valdið miklu tjóni í því lax­eldi sem reynt hefur verið við landið.

Erfiðar vikurKjartan Ólafsson segir að vikur 7 til 9 séu erf­iðar í lax­eldi við Ísland vegna sjáv­ar­kulda.

Vikur 7 til 9 til erfiðar

Kjartan segir að það sé þekkt í lax­eldi í sjó á norð­ur­slóðum að vikur 7 til 9 á árinu séu köld­ustu vikur árs­ins og að kuld­inn geti haft slæm áhrif á lax­inn. „Þetta er ein stærsta áskor­unin sem við stöndum frammi fyrir: Að reyna að lifa í gegnum vikur 7 til 9. Þetta er alveg þekkt. Hluti af áskorun grein­ar­innar er að reyna að ná tökum á þessu.“

Kjartan segir að kuld­inn við Íslands­strendur sé sam­bæri­legur við sjáv­ar­kuld­ann í Norður-Noregi og á Nýfundna­landi. „Á Nýfundna­landi eru þessu vikur, 7 til 9, jafn­vel enn erf­ið­ari en á Íslandi. Þessi svæði glíma við mik­inn kulda á þessum vikum. Það er svo kald­ara í ár en í fyrra og þetta er með köld­ustu árum sem við höfum upp­lifað.“

Kjartan segir að hann hafi vissu­lega áhyggjur af þessum afföllum þó að reiknað sé með allt að 20 pró­sent afföllum í áætl­unum fyr­ir­tæk­is­ins. „Það er ekk­ert hjá Arn­ar­laxi sem þolir ekki dags­ins ljós,“ segir Kjartan um málið. 

Umhverfisstofnun vill upplýsingar um afföll

Umhverf­is­stofnun hefur kallað eftir tölu um afföll af laxi hjá Arn­ar­laxi. „Varðandi umfang laxa­dauð­ans vitum við það ekki en höfum kallað eftir þeim upp­lýs­ingum frá rekstr­ar­að­ila,“ segir í svari frá Umhverf­is­stofnun við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um hvort stofn­unin hafi upp­lýs­ingar um hversu mik­ill laxa­dauð­inn hafi verið hjá fyr­ir­tæk­inu í eld­iskvíum þess í Arn­ar­firði og Tálkna­firði síð­ustu daga. Umhverf­is­stofnun telur ekki að ástæða sé til þess að stofn­unin fari í sjálf­stætt eft­ir­lit til Vest­fjarða til að leggja mat á laxa­dauð­ann hjá Arn­ar­laxi, sem til­kom­inn er vegna mik­ils sjáv­ar­kulda. „Stofn­unin mun fara yfir gögn fyr­ir­tæk­is­ins í reglu­bundnu eft­ir­liti en ekki er ástæða til frekara eft­ir­lits að svo stöddu þar sem ekki er um mengun að ræða, heldur dauð­fisk sem er með­höndl­aður sam­kvæmt verk­lags­reglum fyr­ir­tæk­is­ins og Umhverf­is­stofnun metur full­nægj­andi,“ segir í svari stofn­un­ar­innar.  

„Afföll voru 19,5% sem er heldur meira en áætl­anir gera ráð fyrir.“

20 pró­sent afföllVíkingur Gunn­ars­son segir að afföll í Arn­ar­firði hafi verið um 20 pró­sent.

20 prósent drápust í Arnarfirði

Víkingur Gunn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Arnarlax,  segir í svörum sínum til Stund­ar­innar að um 20 pró­sent af lax­inum í Arn­ar­firði hafi drep­ist. „Í síð­ustu viku lauk slátrun á Hrings­dal þar sem allar kvíar hafa verið tæmdar. Afföll voru 19,5% sem er heldur meira en áætl­anir gera ráð fyrir. Ástæðan er óvenju lágur sjáv­ar­hiti en slíkar aðstæður skapa aukna hættu á afföllum. Þrátt fyrir það er nið­ur­staðan í Hringsal ein sú besta sem sést hefur í íslandi frá byrjun lax­eldis.“

Um laxa­dauð­ann á Tálkna­firði segir Víkingur að tæp tvö hund­ruð tonn hafi drep­ist vegna kulda og 125 vegna flutn­inga frá einni kví til ann­arrar. „Í Tálkna­firði hafa 197 tonn af fiski drep­ist vegna vetr­ar­sára auk þess sem 125 tonn drápust vegna flutn­inga úr kví sem tæma þurfti vegna bil­unar sem kom upp í bún­aði fyrr í vetur. Fyr­ir­fram lá fyrir að fórn­ar­kostn­aður vegna flutn­inga úr til­tek­inni kví yrði mik­ill en ekki er ólík­legt að heild­ar­af­föll í ár verði um 1.500 tonn af 2016 kyn­slóð­inni. Það er innan við 10% af árs­fram­leiðslu fyr­ir­tæk­is­ins. Tjón vegna atvika í vetur er tölu­vert en áætl­anir gera ráð fyrir afföllum í ákveðnu hlut­falli af árs­fram­leiðslu.“ 

Arnarlax eitt til frásagnar

Í svörum sínum gerir Víkingur samt frekar lítið úr laxa­dauð­anum, rétt eins og Kjartan gerir líka, og segir, þegar hann er spurður um það til hvaða aðgerða Arnarlax hafi gripið vegna laxa­dauð­ans, að gert sér ráð fyrir dauða laxa í áætl­unum. „Þetta er hluti af þeim áskor­unum sem við tök­umst á við í upp­bygg­ingu lax­eldis til fram­tíðar og gert er ráð fyrir tölu­verðum afföllum í áætl­unum.“

Umhverf­is­stofnun segir að stofn­unin líti svo á að Arnarlax hafi ekki átt að hafa frum­kvæði að því að til­kynna um laxa­dauð­ann til stofn­un­ar­innar að fyrra bragði þar sem ekki hafi verið hætta á mengun af honum. „Samkvæmt grein 2.5 og 2.6 ber rekstr­ar­að­ila að til­kynna stofn­un­inni um óhöpp sem geta leitt af sér losun meng­andi efna í umhverfið. Ekki er gerð krafa um að fyr­ir­tækin upp­lýsi stofn­un­un­ina um fiski­dauða nema ef hætta er á að frá honum ber­ist mengun, sem getur orðið, sé um mikið magn að ræða og hreinsi­bún­aður nái ekki að við­halda hreinsun í kvínni. Ekki er talið að um það sé að ræða í þessu til­viki. Rekstr­ar­að­ili upp­lýsti stofn­un­una sjálfur um fiski­dauða er haft var sam­band við hann vegna ábend­ingar um fugla við kví­arnar.“

Víkingur segir að svo virð­ist sem Umhverf­is­stofnun hafi fengið ábend­ingu um laxa­dauð­ann þegar Arnarlax var ennþá að greina vanda­málið. „Samkvæmt því sem þú segir hefur UST fengið ábend­ingu í upp­hafi aðgerða þegar verið var að greina aðstæður þannig að hægt væri að til­kynna fag­lega umfang atvika og áætluð við­brögð við þeim til hlut­að­eig­andi eft­ir­lits­að­ilum eins og reglur gera ráð fyrir.“

Umhverf­is­stofnun virð­ist því ekki telja að þörf sé á frek­ari aðgerðum vegna máls­ins og stofn­unin mun ekki hefja sér­staka rann­sókn á því. Eins og er virð­ist Arnarlax því vera sá aðili sem vegur og metur stöð­una sem upp er komin hjá því út af laxa­dauð­anum og er fyr­ir­tækið því eitt til frá­sagnar um vanda­málið eins og er. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár