Eftirlit ríkisins með arðgreiðslum einkarekinna heilsugæslustöðva er að hefjast

Arð­greiðslu­bann var sett á einka­reknar heilsu­gæslu­stöðvar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í ráð­herra­tíð Krist­jáns Þór Júl­í­us­sonar. Stein­grímur Ari Arason, for­stjóri Sjúkra­trygg­inga, segir að fyrst muni reyna á arð­greiðslu­bannið í árs­reikn­ingum einka­rek­inna heilsu­gæslu­stöðva fyrir 2017. Lækna­vaktin er und­an­skilin arð­greiðslu­bann­inu þó að þjón­ustan sem veitt þar sem heim­il­is­lækna- og heilsu­gæslu­þjón­usta öðrum þræði.

Eftirlit ríkisins með arðgreiðslum einkarekinna heilsugæslustöðva er að hefjast
Eft­ir­litið með arð­greiðslum Sjúkra­trygg­ingar Íslands eiga að hafa eft­ir­lit með arð­greiðslum einka­rek­inna heilsu­gæslu­stöðva. Stein­grímur Ari Arason er for­stjóri stofn­un­ar­innar. Mynd: Skjáskot frá RÚV

Enn hefur ekki reynt á arð­greiðslu­bann út úr einka­reknum heilsu­gæslu­stöðvum sem Kristján Þór Júl­í­us­son, þáver­andi heil­brigð­is­ráð­herra, ákvað að setja á þetta til­tekna rekstr­ar­form heil­brigð­is­þjón­ustu árið 2016. Sjúkra­trygg­ingar Íslands munu fyrst geta sinnt eft­ir­lits­hlut­verki sínu með arð­greiðslu­bann­inu þegar árs­reikn­ingar einka­rek­inna heilsu­gæslu­stöðva á höf­uð­borg­ar­svæð­inu liggja fyrir. Þetta kemur fram í svörum frá Stein­grími Ara Arasyni, for­stjóra Sjúkra­trygg­inga Íslands, við fyr­ir­spurnum Stund­ar­innar um málið. 

Stein­grímur Ari segir að árið 2017 hafi Sjúka­trygg­ingar Íslands gert nýja samn­inga við allar einka­reknar heilsu­gæslu­stöðvar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem umrætt arð­greiðslu­bann er samn­ings­bundið. „Samn­ingar á grund­velli fjár­mögn­un­ar­lík­ans­ins og kröfu­lýs­ingar voru gerðir á árinu 2017 við allar sjálf­stætt starf­andi heilsu­gæslu­stöðvar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og því ekki komið til þess að hafa eft­ir­lit með arð­greiðslum fyrr en árs­reikn­ingar stöðv­anna fyrir árið 2017 liggja fyrir,“ segir Stein­grímur Ari.  

269 milljóna arður á átta árum

Þetta arð­greiðslu­bann skiptir veru­legu máli fyrir eig­endur einka­rek­inna heilsu­gæslu­stöðva, eins og til dæmis stöðv­ar­innar í Sala­hverfi. Eigendur þeirrar stöðvar, Haukur Valdi­mars­son og Böðvar Sig­ur­jóns­son, hafa til dæmis greitt sér út 269 millj­óna króna arð á árunum 2008 til 2016. 

Samn­ingur Heilsu­gæslu­stöðv­ar­innar í Sala­hverfi við Sjúkra­trygg­ingar Íslands rann út í árs­lok 2016. Í við­tali við Frétta­tím­ann í sept­em­ber það ár sagði Haukur Valdi­mars­son að eig­endur stöðv­ar­innar hafi ekki ákveðið hvernig þeir myndu aðlaga sig að arð­greiðslu­bann­inu. „Ef við höldum áfram þá þurfum við að semja upp á nýtt [...] Ég sé ekki hvernig menn ætla að fara að því að reka fyr­ir­tæki sem er ekki í plús en það er annað mál. Menn verða bara að skoða hvort þeir treysta sér að reka svo­leiðis fyrir- tæki. Þetta verður bara að koma í ljós.“ 

Þá námu arð­greiðslur Heim­ili­lækna­stöðv­ar­innar í Lágmúla 122 millj­ónum króna á árunum 2001 til 2011 en sú stöð er í eigu margra lækna og er því ekki um að ræða mjög háa fjár­hæð  sem rann til hvers og eins.  

„Þetta er öðru­vísi en með öll önnur fyr­ir­tæki í rekstri.“ 

Eitt rekstr­ar­form tekið út fyrir svigaTeitur Guð­munds­son lækn­inr var einn þeirra sem furð­aði sig á arð­greiðslu­bann­inu árið 2016.

Eitt einkarekið rekstrarform tekið út fyrir sviga

Arð­greiðslu­bannið vakti mikla athygli þegar Kristján Þór ákvað að setja það 2016 og var umdeilt, ekki síst meðal margra lækna. Eitt af því sem vakti athygli var að heil­brigð­is­ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins skyldi setja slíkt bann. 

Teitur Guð­munds­son, læknir sem stendur að nýrri einka­rek­inni heilsu­gæslu­stöð í Urriða­hvarfi í Kópavogi, sagði til dæmis við Frétta­tím­ann í sept­em­ber árið 2016 að sér þætti „sér­stakt“ að eitt til­tekið rekstr­ar­form heil­brigð­is­þjón­ustu væri tekið út fyrir sviga með þessum hætti. „Þetta er öðru­vísi en með öll önnur fyr­ir­tæki í rekstri. En við ákváðum að bjóða í þetta engu að síður og und­ir­göng­umst þær kröfur sem samn­ing­ur­inn felur í sér,“ sagði Teitur en með þessu átti hann meðal ann­ars að önnur einka­rekin heil­brigð­is­fyr­ir­tæki sem eru að stóru leyti fjár­mögnuð af íslenska rík­inu geta greitt út arð til hlut­hafa sinna. 

Stöðin í Urriða­hvarfi var ein af þremur nýjum einka­reknum heilsu­gæslu­stöðvum sem tók til starfa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í fyrra og þurftu þær allar að und­ir­gang­ast arð­greiðslu­bann í samn­ingum sínum við Sjúkra­trygg­ingar Íslands. 

Mörg hundruð milljóna arður

Fyr­ir­tæki sem veita heil­brigð­is­þjón­ustu að mestu eru fjár­mögnuð af íslenska rík­inu eru að á lista yfir fjör­tíu arð­bær­ustu fyr­ir­tæki lands­ins árið 2017. Þar er bækl­un­ar­lækna­fyr­ir­tækið Stoð­kerfi í Orku­hús­inu til dæmis en það hefur greitt út 372 millj­óna króna arð til hlut­hafa sinna og Lækna­vaktin í Kópavogi hefur borgað 201 millj­óna króna arð til sinna hlut­hafa frá hrun­inu 2008. Arð­greiðslu­bannið á heilsu­gæslu­stöðv­arnar gildir ekki fyrir þessi fyr­ir­tæki og ekki heldur fyrir röntgen­mynda­fyr­ir­tækið Lækn­is­fræði­lega mynd­grein­ingu í Domus Medica en það fyr­ir­tæki greiddi 447 millj­óna króna arð til hlut­hafa sinna á árunum 2011 til 2016. 

„Almennar reglur gilda um rekstr­ar­upp­gjör Lækna­vakt­ar­innar“

Læknavaktin undanskilin arðgreiðslubanni 

Eitt af því sem vekur athygli í svörum Stein­gríms Ara er að heil­brigð­is­fyr­ir­tækið Lækna­vaktin í Kópa­vog­inum er und­an­skilin arð­greiðslu­bannninu þar sem starf­semi hennar er ekki skil­greind sem heilsu­gæsla með sama hætti og hinna stöðv­anna. „Almennar reglur gilda um rekstr­ar­upp­gjör Lækna­vakt­ar­innar og því ekki kveðið á um arð­greiðslu­bann í samn­ingi SÍ og Lækna­vakt­ar­innar.“ Nýr samn­ingur á milli Sjúkra­trygg­inga Íslands og Lækna­vakt­ar­innar var gerður í árs­byrjun 2017. 

Lækna­vaktin veitir samt „heim­il­is­lækna- og heilsu­gæslu­þjón­ustu“ líkt og heilsu­gæslu­stöðvar gera almennt. Um til­gang Lækna­vakt­ar­innar segir í árs­reikn­ingi félags­ins: „Til­gangur Lækna­vakt­ar­innar ehf. (félags­ins) er verk­taka­starf­semi á heil­brigð­is­sviði, svo sem skipu­lagn­ing og rekstur vakt­þjón­ustu heim­ilis- og heilsu­gæslu­lækna ásamt skyldri starf­semi og þess að gæta hags­muna hlut­hafa í hví­vetna.“ 

Eins og áður segir hefur Lækna­vaktin greitt út 201 millj­ónar króna arð til hlut­hafa sinna en þar sem starf­semin er eðl­is­ó­lík þeirri þjón­ustu sem heilsu­gæslu­stöðvar veita, jafn­vel þó um sé að ræða heilsu­gæslu- og heim­il­is­lækn­ingar að hluta, þá mega hlut­haf­arnir áfram greiða sér arð út úr þess konar rek­star­formi þrátt fyrir að starf­semin sé skyld þjón­ustu heilsu­gæslu­stöðva.

Eitt af því sem Teitur Guð­munds­son benti á var að það væri kannski ein­kenni­legt að bann væri lagt við arði í einni teg­und einka­rek­innar heil­brigð­is­þjón­ustu, til dæmis hjá heilsu­gæslu­stöð­inni í Sala­hverf­inu, á meðan arður væri heim­il­aður út úr fyr­ir­tækjum eins og Lækna­vakt­inni sem þó veita eðl­is­líka, en ekki alveg eins, þjón­ustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Íslenska útrásin í bresku elliheimilin
Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.
Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkratrygginga með einkarekstri í heilbrigðiskerfinu
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.
Sjúkratryggingar kanna gagnrýni lækna á útvistun aðgerða
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar kanna gagn­rýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár