Íslendingur sagður hafa verið myrtur af tyrkneska hernum í Sýrlandi

Haukur Hilm­ars­son, íslenskur aktí­visti sem hefur barist fyrir rétt­indum hæl­is­leit­enda um ára­bil, er sagður hafa verið drep­inn af tyrk­neskum her­sveitum í febr­úar sam­kvæmt fréttum erlendis frá.

Íslendingur sagður hafa verið myrtur af tyrkneska hernum í Sýrlandi
Haukur Hilm­ars­son Mynd sem birt var af skæru­liða­hópi Kúrda.

Haukur Hilm­ars­son, sem er þekkt­ur­fyrir aktí­visma og rétt­inda­bar­áttu á íslandi, er sagður hafa verið drep­inn af tyrk­neska hernum þann 24. febr­úar síð­ast­lið­inn í aðgerð­unum „Operation Olive Branch“ í norð­ur­hluta Sýrlands.

Til­kynn­ing um frá­fall hans hefur verið birt á Facebook-síðu frétta­mið­ils tyrk­neska komm­ún­ista­flokks­ins og víðar.

Blaða­maður tyrk­neska fjöl­mið­ils­ins Daily Sabah vakti athygli á mál­inu á Twitter. Haukur er sagður hafa verið með­limur MLKP, Marx-Lenínísks komm­ún­ista­flokks í Tyrk­landi, og farið þaðan til liðs við YPG.

Tyrk­neski her­inn hóf umdeilda inn­reið í Afrin-svæðið sem stjórnað er af Kúrdum í lok jan­úar, en svæð­inu stjórnar YPG, skæru­liða­hópur Kúrda sem er á meðal þeirra sveita sem hefur náð hvað mestum árangri í bar­átt­unni gegn Íslamska rík­inu í Írak og Sýrlandi.

Athugun íslenska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins á afdrifum Hauks er enn yfir­stand­andi. Atburða­rásin og yfir­lýs­ing tyrk­nesku miðl­anna hefur því ekki verið stað­fest með sjálf­stæðum hætti af íslenskum yfir­völdum.

Haukur vakti athygli í mót­mæl­unum í kjöl­far banka­hruns­ins 2008, meðal ann­ars þegar hann flagg­aði Bón­us­fána á þing­hús­inu til að vekja athygli á sam­krulli stjórn­mála og við­skipta­lífs.

Þegar hann var hand­tek­inn tveimur vikum síðar safn­að­ist fjöldi fólks fyrir framan lög­reglu­stöð­ina á Hverf­is­götu og sýndi honum stuðn­ing. Und­an­farin ár hefur hann varið tíma í Grikk­landi og aðstoðað flótta­fólk sem hefur leitað til Evrópu frá Mið­aust­ur­löndum og Afríku. Haukur hefur einnig barist fyrir rétt­indum hæl­is­leit­enda á Íslandi. „Hann gerir í raun fátt annað en að hjálpa fólki og berj­ast fyrir rétt­indum þeirra sem standa höllum fæti. Í raun hefur líf hans fyrst og fremst snú­ist um þetta,“ segir áhyggju­fullur vinur Hauks sem Stundin ræddi við.

Á meðal þeirra sem Haukur hefur hjálpað eru Paul Ramses og Rosemary Atieno sem búa í Hafn­ar­firði ásamt tveimur börnum sínum, þeim Fídel Smára og Rebekku Chelsea. Þegar til stóð að senda Ramses til Ítalíu árið 2008 án þess að umsókn hans um hæli hefði verið tekin til efn­is­með­ferðar á Íslandi brutu þeir Haukur Hilm­ars­son og Jason Thomas Slade sér leið inn á Kefla­vík­ur­flug­völl og stöðv­uðu tíma­bundið flug­vél­ina sem átti að ferja Ramses. Málinu lyktaði þannig að dóms­mála­ráðu­neytið dró brott­vísun Ramses til baka og gerði honum kleift að koma aftur til lands­ins. „Þeir voru að berj­ast fyrir rétt­læti og mér fannst þeir vera með ljóns­hjörtu, vegna þess að á þessum tíma virt­ist eng­inn nenna að hlusta. Þannig að ég hef alltaf verið þeim mjög þakk­látur fyrir að hafa staðið fyrir það sem þeir töldu rétt,“ sagði Paul Ramses í við­tali við DV árið 2013 og bætti við að með þessu hefðu Haukur og Jason bjargað lífi hans, án þess þó að hafa nokkurn tím­ann þekkt hann. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa grein.
Tengdar greinar

Stríðið gegn ISIS

Sýrlensk börn reyna að koma í veg fyrir loftárásir með því að kveikja í dekkjum
FréttirStríðið gegn ISIS

Sýrlensk börn reyna að koma í veg fyrir loft­árásir með því að kveikja í dekkjum

Síðan borg­ara­styrj­öldin í Sýrlandi hófst árið 2011 hafa allt að 470 þús­und manns látið lífið og 4 millj­ónir flótta­manna hafa flúið stríðs­á­tökin í land­inu. Loft­árásir hafa verið dag­legt brauð und­an­farin miss­eri fyrir marga íbúa lands­ins, en börnin í borg­inni Aleppo hafa nú tekið upp á því að brenna bíldekk til þess að koma í veg fyrir að sprengjum sé sleppt á borg­ina.
Kemst ítrekað undan drónaárásum: Takið mig af „dauðalistanum“
Erlent

Kemst ítrekað undan dróna­árásum: Takið mig af „dauða­list­anum“

Pakistani sem starfað hefur með frið­ar­sam­tökum í heima­land­inu biðlar til banda­rískra og breskra yfir­valda um að taka hann af „dauða­list­anum“. Segist þegar hafa kom­ist undan fjórum dróna­árásum. Sak­lausir borg­arar og börn eru oftar en ekki á meðal fórn­ar­lamba slíkra árása. Fyrr­ver­andi dróna­stýri­menn gagn­rýna dróna­hern­að­inn og segja hann vatn á myllu öfga­manna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár