Hvað er vitað um áætlun Bandaríkjanna um að binda enda á Úkraínustríðið?

Óvænt tillaga frá Banda­ríkjunum gerir ráð fyrir að Úkraína láti af hendi landsvæði til Rússlands og takmarki varnar­mátt sinn.

Marglaga
Marglaga Samband Zelensky og Trump virð­ist marglaga og hefur Banda­ríkja­for­seti sveifl­ast mjög í afstöðu sinni til þess hvernig enda eigi inn­rás­ar­stríð Rússa í Úkraínu. Mynd: AFP

Volódymyr Zelensky Úkraínu­forseti hittir í dag yfir­stjórn bandaríska hersins í Kyiv, eftir að stjórn­völd í Washington lögðu fyrir úkraínsk stjórn­völd áætlun um að binda endi á stríðið á forsendum sem taldar eru Rússlandi í hag.

Óvænt tillaga frá Banda­ríkjunum gerir ráð fyrir að Úkraína láti af hendi landsvæði til Rússlands og takmarki varnar­mátt sinn. Kyiv hefur áður hafnað slíkum kröfum sem óásættanlegri uppgjöf gagnvart Moskvu, sem hóf innrás sína í fullri stærð fyrir nærri fjórum árum.

Hér er það sem við vitum:

1 Landsvæði 

Upplýsingar úr áætluninni, sem heimildar­maður með þekkingu á málinu greindi AFP frá, benda til þess að Úkraínu sé gert að fallast á lykil­kröfur Rússa, á meðan „óljóst“ sé hvaða skuld­bindingar Rússland myndi leggja fram á móti.

Varðandi landsvæði felur áætlunin í sér „viðurkenningu á Krímskaga og öðrum svæðum sem Rússar hafa tekið“, sagði heimildar­maðurinn.

Rússneski herinn heldur um það …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HH
    Hjörtur Herbertsson skrifaði
    Gefa eftir landsvæði, fækka hermönnum og hergögnum, og þá yrði greið leið fyrir Pútta að klára þetta allt saman. Held að Zelensky sé ekki svo vitlaus að ganga að þessu rugli Trumpa.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár