Þetta eru atriðin í friðaráætlun Trump fyrir Úkraínu

Banda­ríkin munu við­ur­kenna yfir­ráð Rússa yfir Krím­skaga, Luhansk og Donetsk, og NATO-aðild er slegin út af borð­inu fyrir Úkraínu, verði frið­ar­á­ætlun Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta fyrir Úkraínu sam­þykkt. AFP hefur fengið afrit af drögum ætl­un­ar­innar.

Þetta eru atriðin í friðaráætlun Trump fyrir Úkraínu
Áætlun um enda­lok Trump hefur lagt fram áætlun um enda­lok stríðs­ins í Úkraínu sem gerir ráð fyrir að Rússar haldi þeim að stórum hluta þeim svæðum sem þeir hafa her­tekið. Mynd: Kremlin

Áætlanir Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta um frið í Úkraínu fela í sér að Rússar fá að halda miklu af því landi sem þeir tóku yfir í inn­rás sinni í landið.

Banda­ríkin leggja til heild­ar­pakka sem myndi þó stað­festa full­veldi Úkraínu en þvinga fram umfangs­miklar til­slak­anir. Úkraína þyrfti að afsala sér NATO-aðild, sam­þykkja tak­mark­aðan her­afla og við­ur­kenna rúss­nesk yfir­ráð á Krím­skaga, Luhansk og Donetsk, auk fryst­ingar víg­línu í suð­ur­hér­uðum.

AFP fékk síð­degis í dag afhenta áætl­un­ina, sem er í 28 liðum. Um er að ræða drög að áætlun Banda­ríkj­anna. 

Rússland fengi stig­vax­andi end­ur­komu inn í alþjóða­hag­kerfið og mögu­lega end­ur­inn­göngu í G8. Í stað­inn fengju Úkraína örygg­is­trygg­ingar Banda­ríkj­anna og stórt fram­lag til end­ur­upp­bygg­ingar, auk mögu­legrar ESB-aðildar. Samn­ing­ur­inn myndi krefj­ast vopna­hlés, kosn­inga í Úkraínu innan 100 daga og fullrar sak­ar­upp­gjafar allra stríðs­að­ila.

Áætlunin gerir ráð fyrir því að Trump leiði sér­stakt frið­ar­ráð sem hefði eft­ir­lit með fram­kvæmd samn­ings­ins.

Hér …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EK
    Egill Kolbeinsson skrifaði
    Rússar hafa aldrei staðið við gefin loforð og því ættu þeir að gera það núna. Það þarf a knésetja Putin og kenna rússneskri þjóð á meðhöndla lýðræði og frelsi.
    0
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Bara eitt atriði: "4. Úkraína mun fá traustar öryggistryggingar."
    Úkraína hefur a.m.k. tvisvar áður fengið öryggistryggingar, bæði frá Rússlandi og BNA.
    Eiga þessar núna að vera traustari en áður undirritaðar?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár