Forsetinn hótar Demókrötum dauðarefsingu

Fyrr­ver­andi starfs­menn í þjóðar­ör­ygg­is­málum í Banda­ríkj­unum hvetja her­menn til að óhlýðn­ast ólög­legum skip­unum. For­set­inn segir dauða­refs­ingu liggja við hvatn­ing­unni.

Forsetinn hótar Demókrötum dauðarefsingu
Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur í vax­andi mæli talað um að drepa fólk, meðal ann­ars fíkni­efna­smygl­ara. Nú eru það Demókratar sem hvetja til óhlýðni við ólög­legar skip­anir til hers­ins, sem eru rétt­dræpir, að hans mati. Mynd: AFP

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, hót­aði í dag þing­mönnum Demókra­ta­flokks­ins dauða­refs­ingu fyrir að hvetja her­menn til að neita að hlýða ólög­legum skip­unum. Hann kall­aði þá land­ráða­menn og sak­aði þá um upp­reisn.

Hópur þing­manna og öld­unga­deild­ar­þing­manna Demókra­ta­flokks­ins, sem allir hafa bak­grunn úr hernum eða leyni­þjón­ust­unni, birti ummælin í mynd­bandi á X í gær.

Þeir til­greindu ekki hvaða skip­anir þeir ættu við, en rík­is­stjórn Trumps hefur sætt gagn­rýni fyrir notkun sína á banda­rískum her­sveitum bæði inn­an­lands og erlendis, meðal ann­ars fyrir ítrek­aðar aftökur án dóms og laga á meintum fíkni­efna­smygl­urum.

„Þetta er mjög slæmt og hættu­legt fyrir landið okkar. Orð þeirra mega ekki standa. UPPREISNARHEGÐUN LANDRÁÐAMANNA!!! LÆSA ÞÁ INNI???“ sagði Trump á Truth Social.

Síðar bætti hann við í annarri færslu: „UPPREISNARHEGÐUN, SEM VARÐAR DAUÐA!“

Trump end­ur­birti einnig skila­boð frá not­anda sem hvatti hann til að „hengja þá“ og sagði að fyrsti for­seti Banda­ríkj­anna, George Washington, hefði gert slíkt hið sama.

Demókra­ta­flokk­ur­inn gagn­rýndi hót­un­ina harð­lega.

„Trump var að kalla eftir dauða kjör­inna full­trúa Demókra­ta­flokks­ins. Algjör­lega við­bjóðs­legt,“ birti flokk­ur­inn á opin­berum X-reikn­ingi sínum, fyrir ofan end­ur­birt­ingu á fyrri ummælum Trumps: „UPPREISNARHEGÐUN, SEM VARÐAR DAUÐA!“

Meðal þing­mann­anna sem stóðu að skila­boð­unum voru öld­unga­deild­ar­þing­mað­ur­inn Mark Kelly, fyrr­ver­andi liðs­maður sjó­hers­ins og geim­fari hjá NASA, og öld­unga­deild­ar­þing­mað­ur­inn Elissa Slotkin, sem starf­aði með CIA í Írak.

Þing­menn­irnir sex sök­uðu rík­is­stjórn Trumps um að „tefla her­mönnum okkar og sér­fræð­ingum leyni­þjón­ust­unnar gegn banda­rískum borg­urum.“

„Núna stafar stjórn­ar­skránni okkar ekki aðeins ógn erlendis frá, heldur einnig hér heima,“ sögðu þeir og bættu við: „Þið getið neitað að hlýða ólög­legum skip­unum.“

„Ekki flokkspólitískt“

Innan Banda­ríkj­anna hefur Trump sent þjóð­varð­liðið til margra borga, í mörgum til­fellum gegn vilja yfir­valda á staðnum, í til­raun til að ná tökum á meintum stjórn­lausum óeirðum.

Erlendis hefur Trump fyr­ir­skipað árásir á fjölda meintra fíkni­efna­smygl­skipa í Karí­ba­hafi og aust­ur­hluta Kyrra­hafs, sem hafa leitt til dauða meira en 80 manns frá því í byrjun sept­em­ber.

Sér­fræð­ingar segja árás­irnar ólög­legar og jafn­gildi aftökum án dóms og laga, jafn­vel þótt þær bein­ist að þekktum smygl­urum.

Hópur meira en 300 fyrr­ver­andi emb­ætt­is­manna í þjóðar­ör­ygg­is­málum, sem kallar sig „Steady State“, sagði í opnu bréfi á fimmtu­dag að þeir styddi ein­dregið þing­menn­ina sex úr Demókra­ta­flokknum.

Þeir sögðu að sú meg­in­regla að her­menn neiti að hlýða ólög­legum skip­unum væri „ekki umdeild. Hún er ekki flokkspóli­tísk. Hún er ekki ný. Og hún er grund­völlur lög­mætrar borg­ara­legrar stjórnar hers­ins.“

Bæði Hvíta húsið og Pete Hegseth, varn­ar­mála­ráð­herra, gagn­rýndu harð­lega skila­boð þing­manna Demókra­ta­flokks­ins í gær.

Hegseth lýsti því sem „fjórða stigs TDS,“ Trump Der­angement Syndrome, eða „Trump-trufl­un­ar­heil­kenni“ – hug­tak sem hægri­menn nota til að hæð­ast að and­stæð­ingum for­set­ans.

Trump hót­aði áður dauða­refs­ingu árið 2023 í tengslum við Mark Milley, fyrr­ver­andi yfir­mann her­afla Banda­ríkj­anna, sem varð harður gagn­rýn­andi for­set­ans.

Eftir að Milley sagði blaða­mann­inum Bob Woodward að hann hefði leyni­lega hringt í kín­verskan starfs­bróður sinn í spennu­á­stand­inu eftir að stuðn­ings­menn Trumps réð­ust inn í þing­húsið í jan­úar 2021, sagði Trump: „Fyrr á tímum hefði refs­ingin verið DAUÐI!“

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár