Aðgerðaleysi breskra stjórnvalda kostaði þúsundir lífa

Stjórn­völd í Bretlandi fá harða útreið í nýrri skýrslu um opinbera rannsókn á viðbrögð þarlendra stjórn­valda við COVID-19 faraldrinum.

Boris
Boris Rík­is­stjórn Boris Johnson, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, fær fall­ein­kunn í skýrslu opin­berrar rann­sókn­ar­nefndar á við­brögðum við kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. Mynd: EPA

Koma hefði mátt í veg fyrir um 23.000 dauðsföll á Englandi ef fyrsta samkomu­banninu hefði verið komið á fyrr í upphafi COVID-19 heims­faraldursins, samkvæmt opinberri rannsókn sem birt var í dag. Í niður­stöðunum eru stjórn­völd gagnrýnd fyrir „eitraða“ menningu og kven­fyrirlitningu í æðstu lögum breskra stjórn­valda.

Þetta er önnur skýrsla rann­sóknar­nefndarinnar um mótvægis­aðgerðir breskra stjórn­valda í Covid-19 faraldrinum. Í henni saka skýrslu­höfundar ríkis­stjórn Boris Johnsons um að hafa brugðist mikilvægu hlutverki sínu á fyrri hluta 2020 og að samkomu­bannið sem þá var lagt á hafi verið „of lítið og of seint“. 

226.000
hafa lát­ist af völdum Covid í Bret­landi.

Heather Hallett, formaður nefndarinnar, sagði að stjórn­völd hefðu „brugðist alvarlega“ með því að átta sig ekki á hversu mikil hættan var og hversu gríðarlegar afleiðngum Bretland stóð frammi fyrir, né heldur á brýnni þörf á tafar­lausum aðgerðum.

Í skýrslunni, sem …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HW
    Hardy Wardropper skrifaði
    Þetta var ekki "aðgerðaleysi". Ríkisstjórnar Evrópu, ásamt fjölmiðlunum, voru viljandi að búa til harðstjórnarleikrit, og var það leikritið sem rændi samfélaginu vitið og kostaði þúsundir lífa.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár