71 prósent Íslendinga með Costco-kort

Íslend­ingar virð­ast hafa slegið heims­met í aðild að Costco. Gera má ráð fyrir því að Costco hagn­ist um meira en hálfan millj­arð króna á ári af íslenskum með­lima­kortum.

71 prósent Íslendinga með Costco-kort

71 pró­sent Íslend­inga eru með kort í Costco, sam­kvæmt nýrri könnun MMR.

Um 80 pró­sent Íslend­inga á aldr­inum 30 til 49 ára eru skráðir með­limir hjá Costco, en kortið kostar 4.800 krónur á ári. 

Um 190 þús­und fjöl­skyldur og ein­stæðir ein­stak­lingar eru á Íslandi og má því gera ráð fyrir að tekjur Costco af íslenskum með­limum einum og sér sé um 650 millj­ónir króna á ári, út frá því að 135 þús­und fjöl­skyldur eða ein­stak­lingar hafi aðild­ar­kort.

Tekju­háir eru mun lík­legri en aðrir til þess að eiga kort í Costco. Þannig eiga aðeins 49 pró­sent þeirra sem hafa tekjur undir 250 þús­und slíkt kort, en 83 pró­sent þeirra sem hafa 800 þús­und krónur til eina milljón í mán­að­ar­tekjur.

Samkvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar hyggj­ast 60 pró­sent Íslend­inga end­ur­nýja aðild sína að banda­rísku stór­versl­un­inni.

Líklegra er að íbúar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu séu með Costco-kort. Aðeins 23 pró­sent þeirra eiga ekki kort í Costco. Þrátt fyrir fjar­lægð­ina frá versl­un­inni eru 60 pró­sent íbúa á lands­byggð­inni með kort í Costo.

Út frá stjórn­mála­skoð­unum er sá hópur sem helst á kort í Costco eru stuðn­ings­menn Mið­flokks­ins, en 81 pró­sent þeirra eru með­limir.

Stuðn­ings­fólk Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks­ins er ólík­leg­ast til þess að vera með kort í Costco. 

Lýð­fræði­leg dreif­ingHelst eru það tekju­lágir sem eiga ekki kort í Costco.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár