Fimm réttir úr fortíð og nútíð

Hjónin Bryndís Guð­munds­dóttir og Árni Sig­fús­son eiga stóra fjöl­skyldu og lið­leik­inn í eld­hús­inu hefur kallað fram dýr­ind­is­rétti og bakstur sem öll fjöl­skyldan hefur notið við mat­ar­borðið. Hjónin gefa hér nokkrar góm­sætar upp­skriftir.

Fimm réttir úr fortíð og nútíð
Bryndís með barna­barn­inu Hér bakar Bryndís Har­alds­dóttir bollu­af­brigði með chia-fræjum og möndlu­mjólk ásamt barna­barni sínu, Jóhanni Vikari. Mynd: Heiða Helgadóttir

1. Gellur úr gelluvögnum

Árni Sig­fús­son segir að besti matur sem hann fái séu gellur í brúnni lauk­sósu.

„Við Eyja­peyj­arnir smíð­uðum sér­staka gellu­vagna, eða sér­lega útfærða kassa­bíla, skárum gellur af þorsk­haus­unum áður er þeir fóru í bræðslu og drógum svo gellu­vagn­inn á milli húsa og seldum ferskar gellur. Þetta gaf ágætis vasa­pen­ing og afgang­ur­inn, sem ekki seld­ist, var að sjálf­sögðu eld­aður heima. 

Upp­á­halds­upp­skriftin var frá mömmu – að dýfa gell­unum í þeytt egg með mjólk, velta upp úr hveiti, krydd­uðu með salti og pipar, setja á smjör­legna steik­arpönnu með söx­uðum lauk og steikja báðar hliðar. Hella síðan sjóð­andi vatni í botn pönn­unnar, bæta í einum pakka­ten­ingi af kjöt­krafti og leyfa þessu að malla í 15 mín­útur. 

Þá var hrærð smá sósa, eða hveiti­jafn­ingur, út í (smá hveiti með vatni hrist saman) – eða Maizena-blanda fyrir dökka sósu notuð ef þurfti að þykkja sós­una. Þetta er besta …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár