Eigandi Morgunblaðsins býður sig fram til þess að leiða Sjálfstæðisflokkinn

Eyþór Arnalds, sem á um fjórð­ung í Morg­un­blað­inu, býður sig fram í odd­vita­sætið fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Reykja­vík. Hann vill efla lestr­ar­kunn­áttu barna og berj­ast gegn borg­ar­línu.

Eigandi Morgunblaðsins býður sig fram til þess að leiða Sjálfstæðisflokkinn
Eyþór Arnalds Keypti nýverið allan hlut sjáv­ar­út­vegs­ris­ans Samherja í útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins. Mynd: Heiða Helgadóttir

Eyþór Arnalds, eig­andi um fjórð­ungs­hlutar í útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, hefur til­kynnt að hann vilji leiða Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Reykja­vík í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum.

Eyþór vill setja á odd­inn and­stöðu gegn borg­ar­línu, nýju almenn­ings­sam­göngu­kerfi sem sveit­ar­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa komið sér saman um. Auk þess vill hann efla lestr­ar­kunn­áttu barna. 

„Lestr­ar­kunn­áttu barna hefur hrakað í grunn­skólum sam­kvæmt nýlegum rann­sóknum. Reykvísk börn eiga betra skilið. Reykja­vík er í miklum vanda í sam­göngu­málum og dýrar lausnir eins og Borg­ar­lína munu auka á vand­ann með enn meiri þrengslum í gatna­kerf­inu. Reykja­vík á að vera í far­ar­broddi í nútíma­legum sam­göngum en fest­ast ekki í dýrum og þung­lama­legum lausnum. Þreng­ing­arnar hafa nú þegar búið til kransæða­stíflu í gatna­kerfi borg­ar­innar,“ segir Eyþór í fram­boðstil­kynn­ingu sinni á Facebook.

Þá lýsir hann sig andsnú­inn þétt­ingu byggðar og segir hana hafa leitt til dreifð­ari byggðar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Eyþór var áður odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Árborg. Þá var hann feng­inn af rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins til þess að gera úttekt á Rík­is­út­varp­inu. 

Eyþór hefur fengið stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu frá Frosta Sig­ur­jóns­syni, sem einnig hafði verið skorað á til fram­boðs fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn, vegna and­stöðu hans við nýjar almenn­ings­sam­göngur. „Frábært! Þú munt verða Reykja­vík til mik­ils sóma sem borg­ar­stjóri. Gangi þér allt í hag­inn,“ segir Frosti við færslu Eyþórs.

Víða með hagsmuni

Einka­hluta­fé­lagið Ramses, sem er í eigu Eyþórs, hagn­að­ist um 60 millj­ónir árið 2016. Þá er Eyþór eig­andi að ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­inu Special Tours, sem starf­rækt er frá Reykja­vík­ur­höfn. Fyr­ir­tækið keypti fyrr á árinu hvala­sýn­ingu á Granda í Reykja­vík.

Þess að auki var hann einn af leið­andi aðilum við stofnun kís­il­verk­smiðju Thorsil í Reykja­nesbæ. Þá hefur hann stundað tölu­verð við­skipti tengd virkj­unum.

Eyþór, þáver­andi odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Árborg, keypti virkj­ana­kost við Hagavatn ásamt við­skipta­fé­lögum sínum á 34 millj­ónir króna árið 2011. Á sama tíma vann hann að því sem kjör­inn full­trúi í Árborg að láta sveit­ar­fé­lagið byggja virkjun í Ölfusá, sem nefnd er Sel­foss­virkjun. Ekki varð af sam­þykki þess. Stór­iðju­fyr­ir­tæki Eyþórs, Thorsil, var á þeim tíma að leita að bygg­ing­ar­stað og raf­magni á Suð­ur­landi.

Þá var Eyþór stjórn­ar­for­maður málm­bræðsl­unnar GMR í Hval­firði, sem Umhverf­is­stofnun lagði dag­sektir á árið 2016 vegna fjölda athuga­semda sem ekki hafði verið brugð­ist við. Eyþór hætti síðar sem stjórn­ar­for­maður. 

Málm­bræðsl­unni var síðan lokað og félagið tekið til gjald­þrota­skipta í jan­úar í fyrra, eftir að hún hafði meðal ann­ars orðið raf­magns­laus vegna van­gold­inna reikn­inga.

Einnig var Eyþór stjórn­ar­for­maður og pró­kúru­hafi Becromal Iceland ehf, sem rekur afl­þynnu­verk­smiðju í Eyja­firði. Eyþór svar­aði fyrir það opin­ber­lega þegar Kastljós afhjúpaði að verk­smiðjan sleppti meira magni meng­aðra efna í umhverfið en starfs­leyfið heim­il­aði.

Eyþór keypti um 23 pró­senta hlut í Morg­un­blað­inu í fyrra í gegnum félag sitt. Þá stofn­aði hann félagið „Félag um for­seta­fram­boð Davíðs“, sem studdi Davíð Oddsson í kjöri til for­seta Íslands. Fyrr í dag greindi vef­út­gáfa Morg­un­blaðs­ins, mbl.is, frá því að „vax­andi líkur“ væru á fram­boði hans, sam­kvæmt heim­ildum mið­ils­ins. 

Frestur til fram­boðs rennur út á morgun, mið­viku­dag. Kjörið fer fram 27. jan­úar og hafa tveir þegar gefið kost á sér í odd­vita­sætið, borg­ar­full­trú­arnir Áslaug Frið­riks­dóttir og Kjartan Magn­ús­son. Sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar fara fram 26. maí næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár