Svona eignast maður virkjunarkost: Keyptu af Orkuveitunni á 34 milljónir

Eyþór Arnalds og Eiríkur Bragason keyptu Haga­vatns­virkjun af Orku­veitunni þegar fyrir­tækið stóð í stór­felldri eignasölu. Opinbert fyrirtæki fékk rannsóknar­leyfið en einkaðilar eignast það svo. Eyþór Arnalds kom að þremur verkefnum sem tengdust raforku á Suður­landi á sama tíma, annars vegar sem fjár­festir og hins vegar sem sveitar­stjórnar­maður. Reynt að koma virkjunar­kosti sem ekki er nægjanlega vel rann­sakaður í gegnum Alþingi.

Tvær virkjanir
Tvær virkj­anir Eiríkur Bragason, for­stjóri Orku Energy og við­skipta­fé­lagi Eyþórs Arnalds, vann með Eyþóri í tveimur virkj­un­ar­verk­efnum. Annars vegar var hann helsti ráð­gjafi Árborgar við að kanna mögu­leik­ann á bygg­ingu Sel­foss­virkj­unar, að und­ir­lagi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Árborg, og hins vegar hafa þeir Eyþór reynt að koma virkj­un­ar­kosti sem þeir sjálfir eiga við Lang­jökul í nýt­ing­ar­flokk.

Eyþór Arnalds, þáverandi oddviti Sjálfstæðis­flokksins í Árborg, keypti virkjana­kostinn við Hagavatn ásamt viðskipta­félögum sínum á 34 milljónir króna árið 2011.  Fyrirtæki Eyþórs, Íslensk vatnsorka ehf., keypti virkjunar­kostinn af Orkuveitu Reykja­víkur (OR) sem er í eigu Reykja­víkurborgar og annarra sveitar­félag á suðvesturuhorninu. Orkuveita Reykja­víkur hafði þá haft rannsóknar­leyfi á Hagavatnsssvæðinu, sem liggur sunnan Lang­jökuls, frá því árið 2007. Haga­vatns­virkjun var næstum því færð i nýtingar­flokk ramm­áætlunar í síðasta mánuði en hætt var við það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Orka Energy-málið

Fréttir

Samstarfs­maður íslenska ríkisins notaði þrjú félög í skatta­skjólum

Haukur Harðarson, fjár­festir og stjórnar­formaður Orku Energy, átti að minnsta kosti þrjú félög í skatta­skjólum sem hann notaði í viðskiptum sínum fyrir og eftir hrun. Stýrir fyrirtæki sem á í samstarfi við íslenska ríkið í orkumálum í Kína og hefur Haukur nokkrum sinnum fundað með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, vegna orkumála. Einsdæmi er að einka­fyrirtæki komist í þá stöðu sem Orka Energy er í í Kína.
PistillOrka Energy-málið

Ingi Freyr Vilhjálmsson

Tvö hliðstæð spill­ing­armál en bara ein athugun á mútubroti

Mál utan­ríkis­ráðherra Svíþjóðar, Margot Wallström, og mál Illuga Gunnars­sonar eru hliðstæð að ýmsu leyti. Bæði leigðu íbúðir af einkaðilum af óljósum ástæðum. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur brugðist við í tilfelli Wallström en enginn eftirlits­aðili hefur skoðað mál Illuga svo vitað sé. Af hverju stafar þessi munur á milli landanna?
PistillOrka Energy-málið

Ingi Freyr Vilhjálmsson

Illugi gerir undirmenn sína samábyrga

Illugi Gunnarsson menntamála­ráðherra gerði undirmenn sína í menntamála­ráðuneytinu samábyrga við skipu­lagn­ingu á opinberri heimsókn til Kína þar sem Orka Energy var í viðskipta­sendinefnd hans. Starfs­menn ráðu­neyt­isins vissu ekki um viðskipti Illuga og stjórnar­formanns Orku Energy. Einn af undir­mönnum Illuga í ráðuneyti er Ásta Magnúsdóttir sem kom að skipu­lagn­ingu ferðarinnar til Kína en ómögulegt hefur verið að ná í hana til að spyrja hana spurninga um ferðina.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár