Annað árið í röð þar sem Alþingi afgreiðir fjárlög með hraði

Tveir þing­menn úr hverjum þing­flokki á Alþingi fá kynn­ingu á efni fjár­laga­frum­varps­ins um eft­ir­mið­dag­inn í dag. Seðla­bank­inn heldur vöxtum óbreyttum og sendir skýr skila­boð um að slökun á aðhaldi rík­is­fjár­mál­anna verði mætt með hertu aðhaldi pen­inga­mála.

Annað árið í röð þar sem Alþingi afgreiðir fjárlög með hraði

Seðla­bank­inn mun herða á pen­inga­legu aðhaldi ef slökun á aðhaldi rík­is­fjár­mála verður meiri á næsta ári en áður var gert ráð fyrir. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar vegna vaxta­á­kvörð­unar í dag. Vöxtum er haldið óbreyttum, en horfur eru á að spenna í þjóð­ar­bú­skapnum verði áfram umtals­verð.

„Það er spenna ennþá, þess vegna þurfum við aðhald. Ef það slaknar á aðhaldi í rík­is­fjár­málum á næsta ári miðað við það sem við erum með inni í okkar for­sendum í nóv­em­ber þá er aug­ljóst að það þýðir að pen­inga­stefnan verður eitt­hvað aðhalds­sam­ari en ella,“ sagði Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri þegar pen­inga­stefnu­nefndin gerði grein fyrir ákvörðun sinni núna á ell­efta tím­anum.

Fjár­laga­frum­varp nýrrar rík­is­stjórnar verður lagt fram á morgun. Boðuð hefur verið umtals­verð útgjalda­aukn­ing til heil­brigðis-, mennta- og sam­göngu­mála en jafn­framt tveggja pró­sentu­stiga hækkun á fjár­magnstekju­skatti. Kolefn­is­gjald verður hækkað helm­ingi minna en áður stóð til, auk þess sem frí­tekju­mark vegna atvinnu­tekna eldri borg­ara verður hækkað upp í 100 þús­und krónur á mán­uði. Fjár­laga­frum­varp fyrri rík­is­stjórnar gerði ráð fyrir 44 millj­arða tekju­af­gangi á næsta ári, en gengið verður tals­vert á afgang­inn til að standa undir auknum útgjöldum til ýmissa mál­efna­sviða.

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar fá kynn­ingu á meg­in­at­riðum fjár­laga­frum­varps­ins kl. 16 í dag og fyrsta umræða um það hefst á föstu­dag­inn. 

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, hefur óskað eftir því að þing­menn fái í hendur staf­ræna útgáfu af frum­varp­inu í trún­aði í dag og þannig aukið ráð­rúm til und­ir­bún­ings. Hann greinir frá því á Facebook að Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, hafi hvatt rík­is­stjórn­ina til að verða við því. Aðspurður seg­ist Björn engin svör hafa fengið frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu, en telja eðli­legt að þing­menn fái frum­varpið fyr­ir­fram í ljósi fyr­ir­heita sem gefin hafa verið um aukið sam­starf og sam­ráð við Alþingi og efl­ingu þess.

Í fyrra var fjár­laga­frum­varp lagt fram þann 6. des­em­ber og sam­þykkt 22. sama mán­aðar. Þá líkt og nú voru uppi óvenju­legar aðstæður vegna stjórn­ar­slita og Alþing­is­kon­inga að hausti. Nú er fjár­laga­frum­varpið lagt fram enn seinna, en á móti kemur að gert er ráð fyrir að þingið starfi milli jóla og nýárs. Stundin mun fjalla ítar­lega um frum­varpið á morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár