Sjávarútvegsráðherra nátengdur stærsta sjávarútvegsfyrirtækinu: Vinur Þorsteins og fengið rúmar 5 milljónir frá Samherja

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra vill að störf sín séu metin í ljósi tengsla við Samherja.

Sjávarútvegsráðherra nátengdur stærsta sjávarútvegsfyrirtækinu: Vinur Þorsteins og fengið rúmar 5 milljónir frá Samherja

Kristján Þór Júl­í­us­son, nýr sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, hefur sam­tals þegið hátt í 6 millj­ónir í laun og styrki frá Samherja, stærsta útgerð­ar­fé­lagi lands­ins, und­an­farna tvo ára­tugi og er vinur Þor­steins Más Bald­vins­sonar, for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, til margra ára.

Þetta kemur fram í Facebook-færslu frá Krist­jáni, en hann greindi frá því í sam­tali við Stundina í síð­ustu viku að vegna tengsla sinna við Samherja myndi hann hugs­an­lega stíga til hliðar í málum er varða rekstur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins með beinum hætti. Efn­is­lega bætir þessi færsla Krist­jáns Þórs ekki miklu við þær upp­lýs­ingar sem fram komu í svari Krist­jáns Þórs til Stund­ar­innar í síð­ustu viku þar sem mið­ill­inn spurði ráð­herr­ann spurn­inga um tengslin við Samherja en orða­lagið og inn­takið er nokkurn veg­inn það sama. 

Kristján telur sig hæfan til að gegna emb­ætti sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og taka ákvarð­anir um mál­efni er snerta sjáv­ar­út­veg­inn á Íslandi í heild sinni, þrátt fyrir að Samherji sé stærsta útgerð­ar­fé­lag lands­ins og ákvarð­anir um álagn­ingu veiði­gjalda, gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi almennt og úthlutun kvóta skipti miklu fyrir hags­muni og rekstr­ar­grund­völl þess.

Samherji, sem er í hópi þeirra fyr­ir­tækja sem ráða yfir mestum kvóta, hagn­að­ist um 14,3 millj­arða í fyrra, en sam­an­lagður hagn­aður Sam­herj­a­sam­stæð­unnar í efna­hags­upp­sveifl­unni frá 2011 nemur hátt í 90 millj­örðum.

Í Facebook-færslu sinni segir Kristján mik­il­vægt að kjós­endur, fjöl­miðlar og aðrir stjórn­mála­menn séu með­vit­aðir um tengsl sín við sjáv­ar­út­veg­inn og geti metið og gagn­rýnt störf sín með hlið­sjón af þeim. 

„Í því sam­hengi er mér ljúft og skylt að upp­lýsa að við Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, höfum þekkst síðan við vorum ungir menn. Fyrir um tutt­ugu árum (1996–2000) sat ég í stjórn Samherja, þar af sem stjórn­ar­for­maður í u.þ.b. eitt og hálft ár. Samtals 27 daga, í ágúst 2010 og júlí 2012, fór ég sem háseti á mak­ríl­veiðar. Einu launin sem ég hef þegið hjá fyr­ir­tæk­inu eru fyrir áður­nefnda stjórn­ar­setu þar sem stjórn­ar­laun voru tæp 30 þús­und á mán­uði og stjórn­ar­for­maður fékk tvö­föld þau laun. Háseta­hlut­ur­inn fyrir veiði­t­úr­inn í ágúst 2010 var 1.374.929 kr og í júlí 2012 1.661.800 kr. Fyr­ir­tækið hefur síðan tvisvar styrkt fram­boð mitt í próf­kjöri innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins, 500 þús­und kr. árið 2007 og 100 þús­und kr. árið 2013,“ skrifar Kristján. Af þeim tölum og upp­lýs­ingum sem hér eru nefndar má ráða að Kristján hafi allt í allt þegið rúmar 5,5 millj­ónir frá Samherja frá árinu 1996 í styrki, laun og stjórn­ar­laun.

„Ég tel mig vera hæfan til þess að taka ákvarð­anir um mál­efni sem snerta sjáv­ar­út­veg­inn á Íslandi í heild sinni. Komi upp mál sem snerta Samherja sér­stak­lega mun ég að sjálf­sögðu meta hæfi mitt í ljósi fram­an­greinds líkt og allir stjórn­mála­menn þurfa að gera þegar fjöl­skyldu-, vina- og kunn­ingja­tengsl gætu haft áhrif á afstöðu til ein­stakra mála,“ skrifar Kristján. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár