Á alltaf kóríander í ísskápnum

Edda Borg Ólafs­dóttir, tón­list­ar­kona, stofn­andi og skóla­stjóri Tónskóla Eddu Borg, seg­ist yfir­leitt hafa mjög gaman af því að elda og baka og setur hún upp­skriftir reglu­lega á Facebook-síð­una Edda í eld­hús­inu. Hér gefur hún nokkrar hollar upp­skriftir að góm­sætum réttum.

Á alltaf kóríander í ísskápnum
Græn­metis- og fisk­neyt­andi Edda Borg Ólafs­dóttir átt­aði sig á því eftir dvöl í Boston að henni leið betur ef hún sleppti rauðu kjöti og mjólk­ur­vörum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Edda Borg Ólafs­dóttir lagði stund á djass­söng í Boston sum­arið 1993 og tók eftir því þegar hún kom aftur til Íslands að henni leið betur í mag­anum.  

„Þegar ég fór að skoða það betur þá átt­aði ég mig á því að ég hafði ekki borðað rautt kjöt allt sum­arið og ég hafði nán­ast engar mjólk­ur­vörur notað fyrir utan ísinn sem ég fékk mér endrum og sinnum. Ég hélt þessu áfram og fyrir um ári síðan hætti ég líka í kjúklingnum og hef því verið græn­metis- og fisk­neyt­andi.

Ég er oft spurð að því hvað ég sé að borða, sem varð til þess að ég fór að setja upp­skriftir að því sem ég elda heima á Facebook-síð­una Edda í eld­hús­inu. Ég er mis­dug­leg að setja inn upp­skriftir en hef yfir­leitt mjög gaman af því að elda og baka.

Kórí­ander er mitt upp­á­halds­krydd þannig að ég passa alltaf upp …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár