Taldi samstarf við Sjálfstæðisflokkinn „óhugsandi“ fyrir ári

Svandís Svav­ars­dóttir taldi fyrir síð­ustu kosn­ingar að hneyksl­is­mál vegna Panama­skjal­anna gerðu sam­starf VG við Sjálf­stæð­is­flokk­inn óhugs­andi. Nú á VG í form­legum við­ræðum við flokk­inn í kjöl­far fleiri hneyksl­is­mála.

Taldi samstarf við Sjálfstæðisflokkinn „óhugsandi“ fyrir ári

Svandís Svav­ars­dóttir, starf­andi þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, sagði nokkrum dögum fyrir þing­kosn­ing­arnar í fyrra að það væri „óhugs­andi“ að Vinstri græn færu í rík­is­stjórn­ar­sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Hugs­an­lega hefði sam­starf af því tagi ein­hvern tím­ann verið á dag­skrá hjá flokknum, en í ljósi mála sem komið hefðu upp í aðdrag­anda kosn­inga væri stjórn­ar­sam­starf VG og Sjálf­stæð­is­flokks­ins óhugs­andi. 

„Það er alvana­legt í aðdrag­anda kosn­inga að miðju­flokkar reyni að setja af stað orðróm um að vinstri flokk­ur­inn á hverjum tíma ætli að taka upp sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Slík her­ferð er nú farin af stað í þessum anda,“ skrif­aði Svandís á Facebook þann 21. októ­ber 2016 og bætti við:

„Vera kann að sam­starf af þessu tagi hafi ein­hvern tíma verið á dag­skrá hér fyrr á árum. Hins vegar er það óhugs­andi við núver­andi kring­um­stæður eftir aðdrag­anda kosn­ing­anna, upp­ljóstr­an­irnar úr Panama-skjöl­unum og við­brögð for­ystu­manna stjórn­ar­flokk­anna. Þetta hljóta allir að sjá.“

Svo virð­ist sem ýmis­legt hafi breyst á því ári sem liðið er síðan Facebook-færsln birt­ist, því nú eiga Vinstri græn í form­legum stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum við Sjálf­stæð­is­flokk­inn aðeins tveimur vikum eftir að gengið var til kosn­inga.

Boðað var til kosn­ing­anna í ár vegna ann­ars konar hneyksl­is­mála Sjálf­stæð­is­flokks­ins en síð­ast. Að þessu sinni var um að ræða mál er vörð­uðu leynd­ar­hyggju og upp­reist æru barn­a­níð­inga. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár