Frá fíkli til flóttamanns

Leik­ar­inn Atli Rafn Sig­urð­ar­son fer með hlut­verk Mikaels í leik­rit­inu Kart­öflu­æt­urnar eftir Tyrfing Tyrf­ings­son sem var frum­sýnt á Litla sviði Borg­ar­leik­húss­ins fyrir stuttu. Sýningum á því verki lýkur senn og er svo gott sem upp­selt á þær sýn­ingar sem eftir eru. En Atli hefur nú hafið æfingar á leik­rit­inu Medeu eftir Evrípídes, 2.500 ára gam­alli sögu sem verður frum­sýnd á Nýja sviði Borg­ar­leik­húss­ins milli jóla og nýárs. Þar leikur hann Jason, eig­in­mann Medeu. 

Frá fíkli til flóttamanns

Leik­ritið Kart­öflu­æt­urnar segir frá Lísu, hjúkr­un­ar­konu sem vann fyrir Rauða kross­inn á stríðs­hrjáðum svæðum, en hún fór þangað í kjöl­far erf­iðra atburða í lífi hennar og fjöl­skyldu hennar. „Leik­ritið ger­ist hins vegar þegar langt er liðið frá þessum atburðum. Þá fær Lísa í heim­sókn fyrr­ver­andi stjúp­son sinn, Mikael, sem er í vand­ræðum og ætlar hann að fá hana til að fá kær­ustu hans til að falla frá nauðg­un­ar­kæru á hendur honum,“ segir Atli Rafn Sig­urð­ar­son um sög­una og bætir við að fram komi upp­lýs­ingar sem sprengja allt í loft upp og að áhorf­endur fylgist með úrvinnslu þeirra mála í leik­rit­inu.

„Þó að lýs­ingin á þessu sé frekar brú­tal þá er leik­ritið líka mjög fyndið og höf­und­ur­inn, Tyrf­ingur Tyrf­ings­son, beitir húmor óspart til þess að varpa líka enn fremur ljósi á hörmu­leg sam­skipti þessa fólks,“ segir Atli.

Sem fyrr segir fer Atli Rafn með hlut­verk Mikaels, fyrr­ver­andi stjúp­sonar Lísu. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár