Kvenkyns Píratar sækjast eftir forystu í sveitastjórnarkosningum

Hópur kvenna innan Pírata sendi frá sér ákall um breyt­ingar og óskar eftir stuðn­ingi flokks­manna til þess að leiða lista í sveita­stjórn­ar­kons­ingum í maí. „Það þarf ekki alltaf karl í fyrsta sæti,“ segir Þórlaug Borg Ágúst­dóttir.

Kvenkyns Píratar sækjast eftir forystu í sveitastjórnarkosningum

Hópur kvenna innan Pírata hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þær bjóða sig fram til þess að leiða lista flokks­ins kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, sem jafn­rétt­isvænan val­kost. Óska þær eftir stuðn­ingi flokks­manna til þess.

Þórlaug Ágúst­dóttir er ein þeirra sem þar stígur fram. Hún hefur áður til­kynnt að hún sæk­ist eftir odd­vita­sæt­inu í borg­inni, eftir að Halldór Auðar Svansson ákvað að stíga til hliðar í vor. Í sam­tali við Stundina segir hún yfir­lýs­ing­una ákall um breyt­ingar. „Það þarf ekki alltaf karl í fyrsta sæti,“ segir hún. Eins og staðan sé núna sé algeng­ara en ekki að karl sé í for­ystu­sæti og kona í öðru sæti. „Eins og það sé eitt­hvað nátt­úru­lög­mál að það sé alltaf til örlítið hæf­ari karl­maður en hæf­asta konan. Við viljum meina að þetta sé ekki nátt­úru­lög­mál. Það séu fullt af kven­kyns Pírötum sem geta leitt listana. Konur sem þekkja flokk­inn inn og út, hafa starfað fyrir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár