Berjast fyrir betra LÍN

Elísabet Ólafs­dóttir hefur á skömmum tíma orðið fyrir nokkrum per­sónu­legum áföllum, sem hafa leitt til þess að ráð­stöf­un­ar­tekjur hennar hafa rýrnað mjög. Hún segir eitt það erf­ið­asta við breyttar aðstæður hafa verið margra mán­aða bar­áttu við LÍN.

Berjast fyrir betra LÍN
Elísabet Ólafs­dóttir upp­lifði skiln­ings­leysi af hálfu LÍN þegar aðstæður hennar breytt­ust hratt í kjöl­far áfalla. Mynd: Heiða Helgadóttir

Á rúmu ári hefur Elísabet Ólafs­dóttir orðið fyrir síend­ur­teknum per­sónu­legum áföllum. Fyrst missti hún vinn­una, svo heils­una, gekk í gegnum skilnað og varð að leita sér nýs heim­ilis á hörðum leigu­mark­aði. Aðstæður hennar breytt­ust hratt og tekjur heim­il­is­ins rýrn­uðu mjög, en Elísabet er nú ein­stæð tveggja barna móðir að glíma við erfið veik­indi. Hún seg­ist alltaf hafa verið skyn­söm hvað fjár­mál varðar og þegar hún sá á heim­il­is­bók­hald­inu að hún myndi ekki ná að borga end­ur­greiðslu LÍN að fullu síð­asta vor hafði hún sam­band við Lána­sjóð­inn, lét vita af aðstæðum sínum og bað um und­an­þágu frá end­ur­greiðsl­unni á grund­velli skyndi­legra breyt­inga. Svarið var nei. 

„Þegar ég fékk fyrstu synj­un­ina frá LÍN þá fór ég niður á skrif­stof­urnar þeirra og grét,“ rifjar Elísabet upp, en hún greind­ist með alvar­lega geð­lægð sum­arið 2016 og var metin óvinnu­fær. „Ég var umkomu­laus og van­máttug gagn­vart stöð­unni. Ráðgjafi hjá Lána­sjóði íslenskra náms­manna benti mér …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár