Mary, Joy og Sunday komin með dvalarleyfi

Hin átta ára gamla Mary er komin með dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða. Dval­ar­leyfið kemur í kjöl­far laga­breyt­inga sem gerðar voru á Alþingi í síð­asta mán­uði.

Mary, Joy og Sunday komin með dvalarleyfi
Fjöl­skyldan Joy, Mary og Sunday eru komin með dval­ar­leyfi. Mynd: Pressphotos.biz/Geirix

Hin átta ára gamla Mary frá Nígeríu hefur fengið dval­ar­leyfi á Íslandi ásamt for­eldrum sínum Joy og Sunday. Halldór Kristján Þor­steins­son, lög­maður fjöl­skyld­unnar, segir í sam­tali við Stundina að fjöl­skyldan hafi verið kölluð á fund hjá Kæru­nefnd útlend­inga­mála í morgun þar sem þeim var til­kynnt að kæru­nefndin hafi lagt fyrir Útlend­inga­stofnun að veita þeim dval­ar­leyfi á grund­velli 74. greinar laga um útlend­inga, um dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða.  

Á síð­asta degi þings­ins í síð­asta mán­uði sam­þykkti Alþingi breyt­ingar á útlend­inga­lögum sem gerði Mary kleift að fá end­ur­upp­töku á sínu máli. Lögin, sem sam­þykkt voru til bráða­birgða, styttu frest stjórn­valda til að vinna úr umsókn barns um hæli. Í málum sem heyra undir Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ina var frest­ur­inn styttur úr tólf mán­uðum í níu og í málum þar sem umsókn hefur verið tekin til máls­með­ferðar var frest­ur­inn til að veita barni dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða styttur úr 18 mán­uðum í 15 mán­uði. Síðari breyt­ingin kom sér til góða fyrir Mary og fjöl­skyldu hennar, enda hafði hún dvalið hér á landi lengur en í 15 mán­uði. 

Allir flokkar sam­þykktu breyt­ing­una nema Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem taldi hana auka hættu á man­sali. Lög­fræð­ingur Rauða kross­ins sagði það hins vegar ólík­legt þar sem um væri að ræða breyt­ingu til bráða­birgða, lögðin næðu aðeins yfir börn sem væru þegar komin til lands­ins og að ein­ungis væri um að ræða styttri tíma­fresti. 

Halldór segir að í dag sé fjöl­skyld­unni þakk­læti efst í huga. „Það hafa svo margir komið að þessu,“ segir hann. „Bæði ein­stak­lingar úti í bæ og frjáls félaga­sam­tök sem hafa hjálpað þeim og það hefur greini­lega skipt miklu máli. Það er fyrst og fremst póli­tískum þrýst­ingi að þakka að þau fengu dval­ar­leyfi. Þessi breyt­ing sem gerð var á Alþingi hefði aldrei komið til án þessa þrýst­ings. Það er fólk­inu sem beitti þessum þrýst­ingi að þakka að þau fá dval­ar­leyfi og aðrar fjöl­skyldur í sömu stöðu. Svo auð­vitað þing­heimur sjálfur, þeir sem stóðu að því að koma þessu frum­varpi í gegn, þeim ber auð­vitað að þakka.“

Fórnarlamb mansals

Halldór segir mik­inn mun á and­legri líðan fjöl­skyld­unnar frá því í sumar og brott­vísun þeirra var yfir­vof­andi. „Nú brosa þau og hlæja,“ segir hann. 

Stundin sagði sögu fjöl­skyld­unnar í júlí síð­ast­liðnum en móðir Mary, Joy Lucky, er fórn­ar­lamb man­sal og var neydd í vændi áður en hún kom til Íslands. Faðir Mary, Sunday Iserien, flúði Nígeríu vegna póli­tískra ofsókna en hann ótt­að­ist mjög um líf sitt í heima­land­inu. Þau sögðu þetta eina og hálfa ár sem þau höfðu þá dvalið hér á landi vera í fyrsta sinn í ára­tug sem þau hafi upp­lifað öryggi. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár