Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 7 árum.

Þakklátur velgjörðarmönnum sínum

Hjalti Sig­ur­jón Hauks­son seg­ist ekki vita til þess að Bene­dikt Sveins­son hafi hlutast til um að hon­um yrði hald­ið í vinnu hjá Kynn­is­ferð­um, en það megi vel vera.

Þakklátur velgjörðarmönnum sínum

Hjalti Sigurjón Hauksson segist aldrei hafa getað endurgoldið til fulls þá hjálp sem hann hefur fengið frá Benedikt Sveinssyni og fleiri athafnamönnum. Hann viti ekki til þess að Benedikt hafi þrýst á að honum yrði haldið í vinnu hjá Kynnisferðum, en það megi þó vel vera.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan Stundin greindi frá því í lok ágústHjalti, sem dæmdur var árið 2004 fyrir að hafa brotið gegn stjúpdóttur sinni nær daglega á tólf ára tímabili, hefði fengið uppreist æru. 

Þegar í ljós kom að Benedikt Sveinsson, faðir forsætisráðherra, hafði veitt Hjalta meðmæli vegna umsóknar hans um uppreist æru gaf Benedikt út yfirlýsingu þar sem hann lýsti kynnum þeirra með eftirfarandi hætti:

Hjalti Sigurjón Hauksson var um tíma tengdur kunningjafólki okkar hjóna frá skólaárum. Hann hefur í nokkur skipti leitað aðstoðar hjá mér, fyrst og fremst vegna fjárhagsmála eða í tengslum við atvinnuleit. Engin önnur tengsl hafa verið á milli okkar.

Að sögn Hjalta hafa þeir Benedikt þekkst í meira en 20 ár og er honum hlýtt til hans. „Ef Bjarni hefur 10 prósent af mannkostum Benedikts, þá hlýtur hann að vera besti forsætisráðherra sem Ísland hefur átt,“ segir Hjalti.

Hjalti segist í raun aldrei hafa getað endurgoldið þá greiða sem Benedikt hefur gert sér, nema með viðleitni sinni til að verða betri og heilsteyptari maður. Hann hafi oft kosið í prófkjörum hjá Sjálfstæðisflokknum og stutt Bjarna Benediktsson í pólitík. Það hafi hann þó gert af sannfæringu frekar en af sérstakri greiðasemi. 

Fékk lögmannsþjónustu hjá  LEX

Starfaði á LEXBjarni Benediktsson starfaði við lögmennsku á þessum tíma og var meðeigandi að lögmannsstofunni Lex.

Árið 2002 var Hjalti kærður til lögreglu og svo ákærður, gefið að sök að hafa misnotað stjúpdóttur sína nær daglega á 12 ára tímabili frá því hún var um fimm ára gömul. Það var þá sem hann fór á fund Bjarna Benediktssonar sem þá starfaði við lögmennsku og var einn af meðeigendum lögmannsstofunnar Lex. Hjalti segir að Bjarni hafi stappað í sig stálinu og útvegað sér góðan lögmann á stofunni, Ragnheiði Margréti Ólafsdóttur. Hún varði Hjalta í héraði en Helgi Jóhannesson, einn af eigendum Lex, var verjandi hans fyrir Hæstarétti. Segist Hjalti enn ekki hafa greitt til fulls fyrir þá þjónustu sem Lex veitti honum. 

Nokkru eftir að Hjalti hafði afplánað fangelsisdóminn fékk hann vinnu hjá Kynnisferðum. Sveinn Eyjólfur Matthíasson, fyrrverandi verkefnisstjóri hjá Kynnisferðum, hefur lýst því í viðtali við Stundina hvernig hann og fleiri innan fyrirtækisins voru beittir þrýstingi til að halda Hjalta í vinnu. Þegar Stundin ræddi við brotaþola Hjalta Sigurjóns Haukssonar í byrjun september sagði hún að það hefði valdið henni óþægindum að Hjalti ynni hjá Kynnisferðum, enda hafi hún sjálf á þessum tíma verið í vinnu sem krafðist þess að hún fengi reglulega far með rútum fyrirtækisins. Hún hafi gætt þess að þurfa ekki að sitja í rútu sem Hjalti væri að keyra.

Hjalta var sagt upp eftir að umræða vaknaði innan fyrirtækisins um kynferðisbrotadóminn og starfsmenn fóru að núa honum málinu um nasir. Í kjölfarið bárust skilaboð að ofan, úr eigendahópi Kynnisferða, um að afturkalla bæri uppsögnina tafarlaust. Á þeim tíma voru Benedikt Sveinsson og fjölskylda hans yfirgnæfandi í eigendahópi Alfa hf. sem átti allt hlutafé í Kynnisferðum. Fyrirtækið er enn í dag að stórum hluta í eigu foreldra, föðurbróður, systkina og frændsystkina Bjarna Benediktssonar.

„Við vissum af þessum vinatengslum Hjalta og Benedikts [Sveinssonar]. Hjalti talaði um það við okkur mjög oft, að þeir væru bestu vinir og svo framvegis,“ segir Sveinn Eyjólfur í samtali við Stundina og bendir á að þrýstingurinn um að halda Hjalta í vinnu hjá Kynnisferðum hafi borist að ofan, í gegnum æðstu stjórnendur fyrirtækisins. „Hann fór samt alltaf þessa leið. Hann fór í gegnum stjórnarformanninn, sem hluti af stjórninni, niður til framkvæmdastjóra og frá framkvæmdastjóra til mín og rekstrarstjóra.“ 

Aðspurður um málið viðurkennir Hjalti að það geti hugsast að hann hafi notið góðs af vinskap sínum við Benedikt Sveinsson hjá Kynnisferðum. Þá segist hann vera málkunnugur áhrifamönnum í Sjálfstæðisflokknum og það hafi stundum komið sér vel fyrir hann, þegar vantað hefur verkefni eða störf. Þetta hafi ekki síst átt við í gamla daga þegar hann rak skurðgröfuþjónustu. Að sama skapi hafi honum verið refsað af fulltrúum annarra flokka, til að mynda í borginni. „Svo segja sumir að Sjálfstæðisflokkurinn sé spilltur. Ætli það séu ekki miklu frekar hinir. Ef eitthvað er, þá ættum við sjálfstæðismenn að vera grimmari,“ segir Hjalti. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

Myndir af neyðarmóttöku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“
FréttirKynferðisbrot

Mynd­ir af neyð­ar­mót­töku send­ar áfram: „Ekki mynd­ir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lög­reglu var heim­ilt að senda mynd­ir sem tekn­ar voru af Guðnýju S. Bjarna­dótt­ur á neyð­ar­mót­töku fyr­ir þo­lend­ur kyn­ferð­isof­beld­is á verj­anda manns sem hún kærði fyr­ir nauðg­un. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­vernd­ar. Guðný seg­ir ótækt að gerend­ur í kyn­ferð­isaf­brota­mál­um geti með þess­um hætti feng­ið að­gang að við­kvæm­um mynd­um af þo­lend­um. „Þetta er bara sta­f­rænt kyn­ferð­isof­beldi af hendi lög­regl­unn­ar.“
„Strákar sem mér hefði aldrei dottið í hug að væru að stunda þetta“
Viðtal

„Strák­ar sem mér hefði aldrei dott­ið í hug að væru að stunda þetta“

Krist­björg Mekkín Helga­dótt­ir varð fyr­ir sta­f­rænu kyn­ferð­isof­beldi ný­byrj­uð í mennta­skóla. Hún fékk ábend­ingu frá vini sín­um að mynd sem hún hafði að­eins ætl­að kær­asta sín­um væri kom­in í dreif­ingu. Frá þeirri stundu hef­ur Krist­björg fylgst með síð­um þar sem slík­ar mynd­ir fara í dreif­ingu, lát­ið þo­lend­ur vita og hvatt þá til að hafa sam­band við lög­regl­una, en þeir sem dreifi þeim séu bara „strák­ar úti í bæ“.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Hefði ekki dottið í hug að ráða sjálfan sig
2
Viðtal

Hefði ekki dott­ið í hug að ráða sjálf­an sig

Bogi Ág­ústs­son hef­ur birst lands­mönn­um á skján­um í yf­ir fjóra ára­tugi og flutt Ís­lend­ing­um frétt­ir í blíðu og stríðu. Hann seg­ir heim­inn hafa breyst ótrú­lega mik­ið til batn­að­ar á þess­um ár­um en því mið­ur halli á ógæfu­hlið­ina í rekstri fjöl­miðla á Ís­landi. Af öll­um þeim at­burð­um sem hann hef­ur sagt frétt­ir af lögð­ust snjóflóð­in fyr­ir vest­an ár­ið 1995 þyngst á hann. Enn þann dag í dag man hann hvernig var að þurfa að lesa upp nöfn þeirra sem dóu í flóð­inu á Flat­eyri.
„Ég var bara glæpamaður“
3
Viðtal

„Ég var bara glæpa­mað­ur“

„Margt af því sem ég hef gert mun ég aldrei geta bætt fyr­ir,“ seg­ir Kristján Hall­dór Jens­son, sem var dæmd­ur fyr­ir al­var­leg­ar lík­ams­árás­ir. Hann var mjög ung­ur að ár­um þeg­ar ljóst var í hvað stefndi og fann ekki leið­ina út fyrr en ára­tug­um síð­ar. Í dag fer hann inn í fang­els­in til þess að hjálpa öðr­um, en það er eina leið­in sem hann sér færa til þess að bæta fyr­ir eig­in brot.
Hver er Jón Óttar? - „Ég hef sjálfur fylgst með fólki mánuðum saman“
4
Fréttir

Hver er Jón Ótt­ar? - „Ég hef sjálf­ur fylgst með fólki mán­uð­um sam­an“

Jón Ótt­ar Ólafs­son, einn þeirra sem stund­aði njósn­ir fyr­ir Björgólf Thor Björgólfs­son ár­ið 2012, gaf út glæpa­sögu ári síð­ar þar sem að­al­sögu­hetj­an er lög­reglu­mað­ur sem stund­ar hler­an­ir. Jón Ótt­ar vann lengi fyr­ir Sam­herja, bæði á Ís­landi og í Namib­íu, en áð­ur hafi hann ver­ið kærð­ur af sér­stök­um sak­sókn­ara, sem hann starf­aði fyr­ir, vegna gruns um að stela gögn­um.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár