Rússar kvarta undan aðkomu Evrópu

Fyrstu viðbrögð rússneskra stjórn­valda við uppfærðu friðar­plani Banda­ríkjanna eru að fagna „sumum þáttum“ þess, en kvarta undan „afskiptum“ Evrópu.

Loftárás
Loftárás Fólk í hér­að­inu Saporit­sía horfir á brenn­andi bygg­ingar eftir loft­árás Rússa í gær. Mynd: AFP

Rússar hafa séð nýjustu útgáfuna af áætlun Banda­ríkjanna um að binda enda á stríðið í Úkraínu og líta jákvæðum augum á suma þætti hennar, en önnur atriði krefjast umræðu, að sögn talsmanns Kremlar í dag.

Í samtali við frétta­mann rússneska ríkis­sjón­varpsins sagði Yuri Ushakov, aðstoðar­maður stjórn­valda í Kreml, að nýju drögin krefðust „sannarlega alvarlegrar greiningar“ og að Rússar hefðu ekki enn rætt þau við neinn.

„Hægt er að líta á suma þætti með jákvæðum augum, en margir krefjast sérstakra umræðna meðal sérfræðinga,“ sagði Ushakov við frétta­mann ríkis­sjón­varpsins.

Nýjasta áætlun stjórn­valda í Washington, að afloknu samráði við Úkraínu­menn, hefur ekki enn verið birt.

Donald Trump, forseti Banda­ríkjanna, tilkynnti í gær að um væri að ræða „fínstillta“ útgáfu af fyrri 28 punkta áætlun sem hefði falið í sér að Úkraína drægi sig til baka frá Donetsk-héraði og minnkaði her sinn, atriði sem úkraísnk stjórn­völd höfðu gagnrýnt.

Úkraína sagði síðar að „skilningur“ hefði náðst við Banda­ríkin og að báðir aðilar hefðu bakkað með sum þeirra atriða sem þeir voru ósammála um eftir viðræður í Genf.

Bandarískir embættis­menn munu nú funda með báðum aðilum í von um að ganga frá samkomu­laginu, sagði Trump í gær.

Kreml staðfesti fyrr á miðvikudag að Steve Witkoff, sérstakur sendi­fulltrúi Banda­ríkjanna, myndi heimsækja Moskvu í næstu viku til að funda með Vladimir Pútín, forseta Rússlands.

Ushakov gagnrýndi Evrópu sérstak­lega fyrir að taka þátt í viðræðum um að binda enda á stríðið og sakaði þá um „afskiptasemi“ í friðar­ferlinu.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár