Kaupa með fólki til að hreyfa eignir á frosnum markaði

Sjóðir á vegum verk­taka­fyr­ir­tækja sem ger­ast með­fjár­festar í íbúðum spretta nú upp. Lausn frá norsku fyr­ir­tæki gerir þetta mögu­legt. Fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins á Íslandi segir „algjört frost á mark­aði“ hafi orðið til þess að verk­takar skoð­uðu þessa leið.

Kaupa með fólki til að hreyfa eignir á frosnum markaði

REIR20, Öxar20, og Kaup­lyk­ill eru allt sjóðir eða lausnir sem bygg­inga­verk­takar hafa gripið til og stofnað vegna þess hve illa gengur að selja nýjar íbúðir. Öll verk­efnin ganga út á að vera með­eig­andi kaup­enda að hús­næði, gegn því að fá greidda leigu við lok samn­ings­ins sem gerður er við sjóð­ina.

Ekki er um hefð­bundna lána­sjóði að ræða því skil­yrði fyrir þátt­töku þeirra í kaupum á hús­næði, er að keyptar séu eignir af þeim bygg­ing­ar­verk­tök­unum sem standa að baki sjóð­unum.

Reir reið á vaðið og aug­lýsti í haust REIR20. „REIR20 er sjóður sem léttir undir með þér við fast­eigna­kaup. Sjóð­ur­inn leggur til allt að 20% af kaup­verði eign­ar­innar og ger­ist með­eig­andi í eign­inni sem þú hefur engu að síður 100% ráð­stöf­un­ar­rétt yfir,“ segir í kynn­ingu á vef sjóðs­ins. REIR20 er í eigu hjón­anna Hilmars Krist­ins­sonar og Rann­veigar Eirar Ein­ars­dóttur, sem eru eig­endur verk­taka­fyr­ir­tæk­is­ins REIR verk.

Hinir sem fylgdu í kjöl­farið bjóða nákvæm­lega sömu þjón­ustu. Það er ekki til­viljun. Í raun er þetta allt rekið á grunni sjóðs­stýr­ing­ar­fé­lags­ins Stefnis og norska fyr­ir­tæk­is­ins Aparta. 

Aparta sér­hæfir sig í að kaupa og vera með­eig­andi í heim­ilum fólks. Þannig býður fyr­ir­tækið ein­stak­lingum að sækja um eða óska eftir til­boði í allt að 50 pró­sent eign­ar­hlut í hús­næði sínu, án þess að þurfa að flytja út. Það er þó í sam­starfi við verk­taka­fyr­ir­tækin sem Aparta virð­ist ætla að ná fót­festu á Íslandi, fremur en í gegnum við­skipti við ein­stak­linga. 

Svar við frosti á íbúðamarkaði

„Þetta var nú ekki upp­runa­lega hug­myndin hjá okkur. Við ætl­uðum að safna í sjóð og bjóða fólki að kaupa í íbúð­ar­hús­næð­inu þeirra,“ útskýrir Sigurður Við­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Aparta á Íslandi. Það hafi hins vegar orðið „algjört frost á mark­aði“ og verk­takar hafi farið að leita leiða til að koma íbúðum í sölu. 

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EE
    Eiríkur Ellertsson skrifaði
    Sæl
    Það væri áhugavert að fá fram hvaða vextir séu þeim upphæðum sem byggingafélagið reiðir fram. Hvað getur 20milljóna lán orðið eftri 10 ár. Er ég kannski að misskilja ferlið
    0
  • Þorsteinn V. Sigurðsson skrifaði
    Hefði verið gáfulegra að lækka álagninguna, heldur en að búa til ný okurlán, verða ekki vinsælli við þetta.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Óvissa um tekjuforsendur samgöngusáttmálans
5
StjórnmálSamgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins

Óvissa um tekju­for­sendur sam­göngusátt­mál­ans

Óvissa virð­ist ríkja um marga lyk­il­þætti í fjár­mögnun sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri segir það áhyggju­efni að nið­ur­skurður á fjár­lögum muni auka lán­töku­þörf Betri sam­gangna á sama tíma. Hún segir ekki hægt að ráð­ast í fram­kvæmdir sem ekki hafi verið fjár­magn­aðar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár