Sveinn segir söguna alla: „Okkur fannst þessi tengsl mjög skrítin“

Vina­tengsl Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar og Bene­dikts Sveins­sonar vöktu undrun yfir­manna hjá Kynn­is­ferðum. Sama dag og þeir sögðu Hjalta Sig­ur­jóni upp störfum, vegna þess að hann hafði verið dæmdur barn­a­níð­ingur, kom fyr­ir­skipun um að end­ur­ráða hann.

Sveinn segir söguna alla: „Okkur fannst þessi tengsl mjög skrítin“
Eigandi og starfs­maður Yfir­mönnum hjá Kynn­is­ferðum var vel kunn­ugt um mikil vina­tengsl Hjalta Sig­ur­jóns og Bene­dikts Sveins­sonar.

„Okkur fannst þessi tengsl mjög skrítin,“ segir Sveinn Eyjólfur Matth­í­as­son, fyrr­ver­andi verk­efn­is­stjóri hjá Kynn­is­ferðum, um aðdrag­anda þess að honum var fyr­ir­skipað að aft­ur­kalla upp­sögn á Hjalta Sig­ur­jóni Hauks­syni, rútu­bíls­stjóra og dæmdum barn­a­níð­ingi. 

Tengslin sem Sveinn undrað­ist lágu milli Hjalta Sig­ur­jóns og Bene­dikts Sveins­sonar, eins helstu eig­enda Kynn­is­ferða. 

Sveinn segir að skila­boð hafi borist að ofan úr eig­enda­hópi Kynn­is­ferða um að aft­ur­kalla ætti upp­sögn Hjalta, sem var sagt upp vegna mót­mæla við störf hans á grund­velli þess að hann hefði verið dæmdur fyrir að mis­nota stjúp­dóttur sína „nær dag­lega“ í tólf ár.

Sveinn, sem er einn af þeim með­mæl­endum sem dóms­mála­ráðu­neytið byggði á þegar Hjalta Sig­ur­jóni var veitt óflekkað mann­orð í fyrra - að Sveini for­spurðum - segir sög­una alla af því hvernig þrýst­ingi var beitt til að halda mann­inum í vinnu.

Eigendur vildu afturköllun uppsagnar

„Þegar við ákváðum að reka hann, þegar þetta kom upp, það kom grein í DV eða eitt­hvað um þetta, þá komu skila­boð dag­inn eftir um að hann ætti að vera áfram í vinnu. Og við bara sögðum nei, og fram­kvæmda­stjór­inn var með okkur í því. Hann vildi ekki hafa hann í vinnu. Þetta mál gekk í ein­hverjar tvær vikur, og við not­uðum hann ekk­ert. Hann var bara að bíða, hvort hann fengi að halda áfram eða ekki,“ segir Sveinn.

„Við vissum af þessum vina­tengslum Hjalta og Bene­dikts [Sveins­sonar]. Hjalti tal­aði um það við okkur mjög oft, að þeir væru bestu vinir og svo fram­vegis,“ útskýrir Sveinn. „Þetta er það sem við ræddum okkar á milli, ég, rekstr­arsstjóri og fram­kvæmda­stjóri. Okkur fannst þessi tengsl mjög skrítin. Sér­stak­lega eftir að upp komst um þetta mál, á þeim tíma. Dæmdur barn­a­níð­ingur, af hverju það var svona mik­il­vægt að hafa hann í vinnu.“

Hann segir að þrýst­ing­ur­inn hafi borist að ofan, í gegnum æðstu stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins. „Hann fór samt alltaf þessa leið. Hann fór í gegnum stjórn­ar­for­mann­inn, sem hluti af stjórn­inni, niður til fram­kvæmda­stjóra og frá fram­kvæmda­stjóra til mín og rekstr­ar­stjóra.“ 

Hættu þrýstingi eftir umfjöllun

Hann segir að eftir fjöl­miðlaum­fjöllun um mót­mælin við að Hjalti væri við störf hefði síðan leitt af sér að látið var af þrýst­ingi að ofan.

„Og þá komu þessi skila­boð til okkar að við réðum þessu, hvað við gerðum. Þá voru þeir búnir að sjá að þetta þýddi ekk­ert. Þetta var þá komið í blöðin og yrði aldrei friður.“

Þær lyktir urðu að upp­sögn Hjalta Sig­ur­jóns stóð. Síðar tók hins vegar við til­raun Hjalta til að fá störf ann­ars staðar, en það var meðal ann­ars á grund­velli með­mæla­bréfs frá Sveini Eyjólfi sem Hjalti náði að fá upp­reist æru hjá dóms­mála­ráðu­neyt­inu og for­seta Íslands. Sveinn hafði ekki grun um að hann væri að mæla með því að Hjalti fengi upp­reist æru og óflekkað mann­orð, enda hafði hann engar for­sendur til að meta iðrun hans eða hegðun utan vinnu.

„Ég skrif­aði aldrei undir bréfið eins og það leit út þarna, sem kemur frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu. Hann var að fara að vinna hjá Olíu­dreif­ingu, minnir mig, frekar en Skelj­ungi. “

Þannig að hann er að mis­nota þetta með­mæla­bréf sem þú veitir honum vegna vinnu?

„Alveg klár­lega.“

Fjölskylda Benedikts átti Kynnisferðir

Á þeim tíma sem eig­endur kröfð­ust þess að upp­sögn Hjalta Sig­ur­jóns yrði aft­ur­kölluð voru Benedikt Sveins­son og fjöl­skylda hans yfir­gnæf­andi í eig­enda­hópi Alfa hf, sem fór með 100% hlut í Kynn­is­ferðum. 

Ráðandi hlutur í Kynn­is­ferðum var þannig í höndum Bene­dikts Sveins­sonar, bróður hans, Einars Sveins­sonar, og svo eig­in­konu Bene­dikts og afkom­enda þeirra. Bjarni Bene­dikts­son, nú for­sæt­is­ráð­herra en þá fjár­mála­ráð­herra, er hins vegar ekki í eig­enda­hópnum, enda sagði hann sig frá trún­að­ar­störfum í við­skiptum á vegum fjöl­skyld­unnar eftir efna­hags­hrunið. Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, og ætt­ingi eig­enda­hóps­ins, var hins vegar í eig­enda­hópnum þar til í fyrra­vor, en hann hafði ekki verið í eig­enda­hópnum 2013.

Nú hefur hins vegar komið fram að Bjarni vissi þegar í júlí síð­ast­liðnum að faðir hans, Bene­dikts Sveins­son, væri einn af með­mæl­endum Hjalta Sig­ur­jóns. Hinir tveir með­mæl­end­urnir hafa hafnað því að fyr­ir­ætlun þeirra hefði verið að mæla með því að Hjalti fengi upp­reist æru.

Annað tækifæri - leynd yfir meðmælendum

Nú eru fyr­ir­hug­aðar Alþing­is­kosn­ingar 28. októ­ber næst­kom­andi í kjöl­far þess að stjórn Bjartrar fram­tíðar sam­þykkti að slíta stjórn­ar­sam­starfi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn vegna trún­að­ar­brests í tengslum við mál­efni tengd veit­ingu upp­reistar æru. Björt fram­tíð taldi það trún­að­ar­brest að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra hefðu haft hag að því að leyna upp­lýs­ing­unum, sem þau og gerðu.

Bjarni var spurður út í mál­efnin í Rík­is­út­varp­inu 16. júní síð­ast­lið­inn. Þá tók hann afstöðu með því að brota­menn fengju „annað tæki­færi“. Í spurn­ingum RÚV var fjallað um mál Róberts Downey, og sagði Bjarni að það hefði fengið sína „hefð­bundnu með­ferð“, en síðar kom í ljós að Róbert fékk und­an­þágu með því að hann fékk upp­reist æru áður en fimm ár voru liðin frá fulln­ustu refs­ingar. Hins vegar hefur komið fram að fjöl­margir aðrir hafi fengið sömu und­an­þágu.

„Ég myndi frekar hall­ast að því að í okkar sam­fé­lagi viljum við gefa fólki tæki­færi aftur í líf­inu, sem hefur tekið út sína refs­ingu. Við getum ekki látið til­finn­ingar kannski ráða of miklu í þeim efnum. Með þessu er ég ekki að gera neinn mun á ein­stökum brotum eða ein­stak­lingum,“ sagði Bjarni í júní.

Á þeim tíma hafði verið talið að Bjarni hefði sem starf­andi dóms­mála­ráð­herra verið póli­tískt ábyrgur fyrir ákvörð­un­inni, en hann leið­rétti það ekki fyrr en einum og hálfum mán­uði síðar. 

Bjarni greindi ekki frá því að faðir hans væri með­mæl­andi í mál­inu og fyr­ir­spurnum Stund­ar­innar um málið var ekki svarað af dóms­mála­ráðu­neyt­inu, jafn­vel þótt úrskurð­ar­nefnd upp­lýs­inga­mála hefði þá þegar kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að það gengi gegn upp­lýs­inga­lögum að leyna upp­lýs­ing­unum. Hins vegar kom fram í máli Bjarna á blaða­manna­fundi í Valhöll um slit rík­is­stjórn­ar­sam­starfs­ins að hann hefði fengið upp­lýs­ingar um að fjöl­miðlar væru að spyrja út í málið. Þá hafi hann ákveðið að upp­lýsa Benedikt Jóhann­es­son, for­mann Við­reisnar, og Óttarr Proppé, for­mann Bjartrar fram­tíðar, um tengsl sín við málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
6
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár