Segir hug sinn hafa verið hjá þolendum en hunsaði óskir þeirra um svör

„Okkar hugur hefur ávallt verið með þeim sem hefur átt um sárt að binda,“ sagði Bjarni Benediktsson forsætis­ráðherra á blaðamanna­fundi í Valhöll. Hann og samherjar hans hunsuðu hins vegar fyrir­spurnir þolenda og viðhéldu leynd fyrir gerendur.

Bjarni í Valhöll
Bjarni í Valhöll Lýsingar for­sæt­is­ráð­herra á við­horfum sínum nú til þolenda sam­rým­ast ekki við­brögðum hans við beiðnum þeirra fyrr í sumar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Bjarni Benediktsson forsætis­ráðherra sagði í ræðu sinni á blaðamanna­fundi sem fram fór í Valhöll á fimmta tímanum að hugur hans og ríkis­stjórnarinnar hefði ávallt verið með þeim sem hefðu átt um sárt að binda. Þá sagði hann að fólk hefði þurft að líða sálar­angist vegna þess hvernig kerfið hefði talað til þess.

„Okkar hugur hefur ávallt verið með þeim sem hefur átt um sárt að binda. Sem hafa þurft að lifa sálar­angist útaf allri umræðunni og hvernig kerfið hefur talað til þessa fólks,“ sagði Bjarni.

Hins vegar liggur fyrir að bæði Bjarni Benediktsson og dómsmála­ráðuneytið hunsuðu mánuðum saman fyrir­spurnir þolenda og aðstand­enda þeirra um veitingu uppreistar æru til kynferðis­brota­mannsins Roberts Downey. 

Svaraði ekki kalli brotaþola og aðstandenda þeirra

Bergur Þór Ingólfsson, faðir eins af brota­þolum Roberts, sendi Bjarna opið bréf í aðsendri grein sem birtist í Frétta­blaðinu þann 22. júní síðastliðinn.

„Fyrst og fremst viljum við heyra rök núverandi forsætis­ráðherra fyrir því vali sínu að veita einmitt þessum manni uppreist æru en ekki öðrum. Og við hvetjum núverandi dómsmála­ráðherra til að gera allt sem í hennar valdi stendur til að taka málið upp að nýju því það virðist hafa farið í gegn án þess að nokkur beri ábyrgð og enginn hafi unnið við það,“ skrifaði Bergur sem fékk engin svör.

Þá reyndi dóttir Bergs, Nína Rún Bergs­dóttir, ítrekað að fá svör frá Bjarna við spurningum sem brunnu á henni. Hún taggaði hann í tvígang á Facebook og óskaði eftir svörum án árangurs. „Hann hefur ekki sýnt nein viðbrögð eftir að ég taggaði hann í tveimur Facebook-færslum. Ég var nú ekki að búast við því þar sem hann hefur nú þegar sýnt að hann snýr baki við öllu sem honum finnst óþægilegt, eins og kynferðis­ofbeldi,“ sagði hún í viðtali við DV. 

Spurningar hennar voru einfaldar: „Af hverju vill hann ekki hlusta á okkur? Af hverju veitir hann manni sem var dæmdur fyrir að ræna æsku fimm ungra stúlkna og hefur verið kærður af þeirri sjöttu uppreist æru og neitar að tjá sig um það? Hvað gerðist í þessu ferli? Af hverju er öll þessi leynd? Er eitthvað sem hann vill ekki að við komumst að?“ Þá sagði hún: „Maðurinn missti æruna við að brjóta á okkur. Bjarni ætti að sýna okkur þá virðingu og heiðar­leika að svara spurningum okkar. Að fá að vita hvað leiddi til þess að Robert Downey fengi uppreist æru, hverjir skrifuðu undir og afhverju, myndi þýða mikið fyrir mig og mína fjöl­skyldu og einnig gefa mér einhvers konar sálarró.“

„Að fá að vita hvað leiddi til þess að Robert Downey fengi uppreist æru, hverjir skrifuðu undir og afhverju, myndi þýða mikið fyrir mig og mína fjöl­skyldu og einnig gefa mér einhverskonar sálarró“

Á þessum tíma héldu brota­þolarnir að Bjarni Benediktsson hefði sjálfur lagt fram tillögu um uppreist æru Roberts Downey, enda hafði hann gefið það skýrt til kynna í viðtali við frétta­stofu RÚV. „Nei, ég tók við niður­stöðu úr ráðuneytinu sem hafði fengið sína hefð­bundnu meðferð,“ sagði hann þann 16. júní.

Það var ekki fyrr en löngu síðar, þegar leiðara­höfundur Frétta­blaðsins gagnrýndi Bjarna, sem hann birti stöðu­uppfærslu á Facebook, varði hendur sínar og upplýsti um að það hefði ekki verið hann heldur Ólöf Nordal, fyrr­verandi innan­ríkis­ráðherra, sem bar ábyrgð á því að Robert Downey var sæmdur óflekkuðu mannorði. Þetta kom þolendunum í opna skjöldu, enda höfðu þær gagnrýnt Bjarna um margra vikna skeið á grund­velli misvísandi upplýsinga sem hann hafði sjálfur veitt í viðtali við RÚV.

Fund­ur­inn í ValhöllRáð­herrar og þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins sátu á fremsta bekk ásamt frétta­mönnum.

 

Bjarni sagði tilfinningarnar ekki mega ráða för

Bjarni Benediktsson og Brynjar Níelsson hafa verið gagn­rýndir harðlega fyrir að sýna þolendum lítilsvirðingu með ummælum sínum í fjöl­miðlum.

Bjarni sagði í viðtali við RÚV þann 16. júní síðastliðinn, þegar fjallað var um mál Roberts Downey, að mikilvægt væri að fólk sem hefði tekið út sína refsingu fengi aftur tækifæri í lífinu, óháð því hvers eðlis brotin væru. „Við getum ekki látið tilfinningar kannski ráða of miklu í þeim efnum. Með þessu er ég ekki að gera neinn mun á einstökum brotum eða einstaklingum. Við viljum einfald­lega búa í samfélagi sem gerir ekki upp á milli fólks á grund­velli slíkra hluta þegar um borgaraleg réttindi er að ræða,“ sagði hann.

Þá hefur Brynjar Níelsson, formaður stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar, látið hafa eftir sér í fjöl­miðlum að til séu verri brot en þau sem Robert Downey framdi. Jafnframt vísaði hann því á bug að afhjúpun á veitingu uppreistar æru til Hjalta Sigurjóns Hauks­sonar, manns sem var dæmdur fyrir að brjóta gegn stjúpdóttur sinni nær daglega í tólf ár en fékk uppreist æru í fyrra, myndi ýta á eftir breytingum á laga­ákvæðum um veitingu uppreistar æru.

Beittu sér fyrir leynd

Brynjar, rétt eins og dómsmála­ráðuneytið, lagðist eindregið gegn því að þolendur og aðrir fengju að sjá gögnin í máli Roberts. Úrskurðar­nefnd um upplýsingamál komst  hins vegar að þeirri niður­stöðu á mánudag að almenningur ætti lagalegan rétt til aðgangs að gögnunum með vissum takmörkunum.

Jafnframt vakti athygli þegar sjálfstæðis­menn í stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd, aðrir en Brynjar, gengu út af fundi nefndarinnar þegar rætt var um mál Roberts Downey. Þetta var gert á grund­velli laga­túlkunar dómsmála­ráðuneytisins sem úrskurðar­nefnd um upplýsingamál hafnaði síðar.

Jafnframt reyndi Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, formaður allsherjar- og menntamála­nefndar, að koma í veg fyrir að rædd yrði um mál hans á opnum fundi nefndarinnar. Brást dómsmála­ráðherra illa við þegar Þórhildur Sunna Ævars­dóttir, þingkona Pírata bar upp spurningar um mál Roberts og vildi ekki svara þeim. 

Bjarni Benediktsson hefur nú lýst því yfir á blaðamanna­fundi að hugur hans og stjórnar­meirihlutans hafi alltaf verið með þolendunum. Hins vegar útskýrði hann ekki hvernig stóð á því að hann hunsaði fyrir­spurnir brotaþola. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár