Hjalti fundaði með Bjarna og Brynjari eftir að hann var kærður

Hjalti Sigurjón Hauksson ráð­færði sig við Bjarna Bene­dikts­son og Brynjar Níelsson þegar þeir störf­uðu við lög­mennsku eftir að stjúp­dóttir hans kærði hann fyrir kyn­ferð­is­brot.

Hjalti fundaði með Bjarna og Brynjari eftir að hann var kærður

Hjalti Sigurjón Hauksson, maður sem var dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn stjúp­dóttur sinni árið 2004 en fékk upp­reist æru í fyrra, kann­ast ekki við að Brynjar Níelsson, núver­andi for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, hafi verið verj­andi sinn. Hins vegar hafi hann átt fund með Brynjari þegar málið var til með­ferðar hjá dóm­stólum.

Brynjar sagði í við­tali í Kast­ljósi á fimmtu­dag að hugs­an­lega hefði hann ein­hvern tím­ann varið Hjalta þegar hann starf­aði við lög­mennsku. „Ef ég man rétt þá held ég að ég hafi meira að segja varið þennan Hjalta ein­hvern tím­ann, svo það sé bara upp­lýst,“ sagði Brynjar.

Hjalti Sigurjón segir í sam­tali við Stundina að hann hafi ráð­fært sig við Brynjar og átt tvo fundi með honum þegar mál hans voru fyrir dóm­stólum á sínum tíma. Aldrei hafi komið til þess að Brynjar yrði verj­andi hans, þótt eftir á að hyggja hefði hann gjarnan viljað það enda sé Brynjar snjall lög­maður. 

Eins og fram kom í frétt Stund­ar­innar á fimmtu­dag var Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra einn þeirra sem Hjalti leit­aði til eftir að hann var kærður fyrir kyn­ferð­is­brot gegn stjúp­dóttur sinni árið 2002. Þá var Bjarni lög­maður á Lex lög­manns­stofu.

Hjalti kann­að­ist lít­il­lega við Bjarna í gegnum Benedikt Sveins­son föður hans, en nú liggur fyrir að Benedikt var einn þeirra sem veittu Hjalta Sig­ur­jóni með­mæli vegna umsóknar hans um upp­reist æru í fyrra. 

Hjalti er stuðn­ings­maður Bjarna Bene­dikts­sonar og Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þegar Stundin ræddi við Hjalta í lok ágúst sagð­ist hann hafa íhugað að leita ráða hjá for­sæt­is­ráð­herra vegna fjöl­miðlaum­fjöll­unar.

Þá hafði Stundin greint frá því að Hjalti hefði verið sæmdur óflekk­uðu mann­orði af íslenskum stjórn­völdum.

Auk föður for­sæt­is­ráð­herra skrif­aði fyrr­ver­andi yfir­maður Hjalta hjá Kynn­is­ferðum, Sveinn Eyjólfur Matth­í­as­son, upp á með­mæli fyrir hann. 

Kynn­is­ferðir eru í eigu for­eldra, föð­ur­bróður, systk­ina og frændsystk­ina Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra. 

Umdeild framganga Brynjars 

Sem for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar hefur Brynjar Níelsson haft verk­lag og máls­með­ferð við veit­ingu upp­reistar æru til umfjöll­unar und­an­farna mán­uði. RÚV greindi frá því þann 8. ágúst að dóms­mála­ráðu­neytið hefði afhent Brynjari gögn um slík mál aftur í tím­ann, meðal ann­ars nöfn manna sem fengið hafa upp­reist æru og með­mæl­enda­bréf þeirra. 

Fram­ganga Brynjars í fjöl­miðlum hefur vakið athygli, til að mynda þegar hann sagði í við­tali við Mbl.is að til væru verri brot gegn börnum en þau sem kyn­ferð­is­brota­mað­ur­inn Robert Downey framdi. Bergur Þór Ing­ólfs­son, faðir eins af brota­þolum Roberts, sagði á opnum fundi alls­herjar- og mennta­mála­nefndar í byrjun mán­aðar að það hefði verið skelfi­legt fyrir þolendur að horfa upp á menn í áhrifa­stöðum „smætta brotin“.

Brynjar kom fram í við­tali við Mbl.is dag­inn sem Stundin greindi frá því að Hjalti Sigurjón Hauksson hefði fengið upp­reist æru. Brynjar lagði áherslu á að „brotið [væri] ekki stóra málið ef afplánun er lokið“, eins og það var orðað í fyr­ir­sögn, og hafn­aði því að mál Hjalta ætti eftir að ýta á eftir ein­hverjum breyt­ingum hvað varðar veit­ingu upp­reistar æru. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár