Yfirmaður hjá Kynnisferðum vildi að sem flestir tækju sér Hjalta til fyrirmyndar

Auk föður for­sæt­is­ráð­herra skrif­aði fyrr­ver­andi yfir­maður Hjalta Hauks­sonar hjá Kynn­is­ferðum upp á með­mæli fyrir hann. Kynn­is­ferðir eru í eigu for­eldra, föð­ur­bróður, systk­ina og frændsystk­ina Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra.

Yfirmaður hjá Kynnisferðum vildi að sem flestir tækju sér Hjalta til fyrirmyndar
Hjalti Sigurjón Hauksson Fékk með­mæla­bréf frá föður for­sæt­is­ráð­herra og yfir­manni sínum innan fyr­ir­tækis í eigu fjöl­skyldu ráð­herr­ans. Mynd: Skjáskot af Facebook

„Hér með stað­festi ég und­ir­rit­aður að um tíma hafði ég með höndum stjórn deildar innan Kynn­is­ferða sem Hjalti Sigurjón Hauksson (...) vann hjá. Ég get af heilum hug stað­fest að Hjalti er mjög sam­visku­samur, vand­virkur, góður bíl­stjóri.“

Þannig hefst með­mæla­bréf Sveins Eyjólfs Matth­í­as­sonar, eins af þremur umsagn­ar­að­ilum Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar, vegna umsóknar hans um upp­reist æru.

Sveinn Eyjólfur var yfir­maður Hjalta hjá Kynn­is­ferðum, en Hjalta var sagt upp störfum hjá fyr­ir­tæk­inu árið 2013. Kynn­is­ferðir eru meðal ann­ars í eigu for­eldra, föð­ur­bróður, systk­ina og frændsystk­ina Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra.

Eins og greint var frá í gær und­ir­rit­aði Benedikt Sveins­son, faðir for­sæt­is­ráð­herra, með­mæli fyrir Hjalta þegar hann sótti um upp­reist æru.

Hjalti var dæmdur í fimm og hálfs árs fang­elsi fyrir kyn­ferð­is­brot gegn stjúp­dóttur sinni árið 2004 en var sæmdur óflekk­uðu mann­orði af íslenska rík­inu í fyrra. 

Hann fékk með­mæli frá föður for­sæt­is­ráð­herra en jafn­framt frá Haraldi Þór Teits­syni, fram­kvæmda­stjóra rútu­fyr­ir­tæk­is­ins Teits Jón­as­sonar, og áður­nefndum Sveini Eyjólfi.

Í umsögn sinni lýsir Sveinn Hjalta með eft­ir­far­andi hætti: „Hann er í hópi bestu fag­manna á sínu sér­sviði og væri ósk­andi að sem flestir gætu tekið hann sér til fyr­ir­myndar. Honum er að auki umhugað um heill og far­sæld vinnu­veit­enda sinna og hag verk­kaupa.“

Þá kemur fram að Hjalti sé þekktur fyrir ljúf­lyndi og sé þægi­legur og umgengn­is­góður í hví­vetna. „Með glað­værð sem smitar út frá sér og skapar gott og hlýtt and­rúms­loft.“

Eins og Stundin greindi frá í gær hafa Benedikt Sveins­son, faðir for­sæt­is­ráð­herra og einn af eig­endum Kynn­is­ferða, og Hjalti Sigurjón Hauksson þekkst í mörg ár. Hjalti hefur sagst þakk­látur Benedikt fyrir að hafa staðið með sér í gegnum súrt og sætt og útvegað sér vinnu hjá Kynn­is­ferðum. 

Erla Hlyns­dóttir, fjöl­miðla­kona sem starfar nú sem fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Pírata, rifjar upp á Facebook að árið 2013 hafi hún skrifað frétt um það þegar Hjalta Sig­ur­jóni var sagt upp hjá Kynn­is­ferðum.

„Hann hringdi í mig eftir að fréttin birt­ist, sagði ósann­gjarnt að honum hefði verið sagt upp, sér í lagi í ljósi þess að yfir­menn Kynn­is­ferða hefðu vitað að hann væri dæmdur barn­a­níð­ingur, og hefði hann starfað þar í nokkur ár, en hefði viljað gefa honum tæki­færi,“ skrifar Erla. 

Þegar Stundin ræddi við brota­þola Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar, stjúp­dótt­ur­ina sem hann var dæmdur fyrir að hafa mis­notað kyn­ferð­is­lega nær dag­lega í tólf ár, sagð­ist hún spyrja sig hvort það væri til­viljun að Hjalti hefði viljað vinna við að keyra bíla hjá Kynn­is­ferðum einmitt þegar hún sjálf var í vinnu sem krafð­ist þess að hún fengi reglu­lega far með rútum fyr­ir­tæk­is­ins. Sagði hún það hafa valdið sér óþæg­indum að Hjalti starf­aði hjá Kynn­is­ferðum, en hún gætt þess að sneiða hjá því að hitta hann.

Uppfært 18. sept­em­ber:

Sveinn Eyjólfur Matth­í­as­son segir að bréfið hann sem und­ir­rit­aði hafi verið ætlað til stuðn­ings umsóknar Hjalta um starf hjá olíu­dreif­ing­ar­fyr­ir­tæki. Hjalti hafi lofað því að bréfið yrði ekki notað til umsóknar um önnur störf. „Afrit af með­mæla­bréf­inu sem Hjalti Sigurjón skil­aði inn vegna umsóknar sinnar um upp­reist æru barst mér ekki fyrr en laug­ar­dag­inn 16. sept­em­ber s.l. frá ráðu­neytsi­stjóra dóms­mála­ráðu­neyts­ins. Ég rit­aði ekki undir það með­mæla­bréf og kann­ast ekki við þá umsögn sem mér er ætluð,“ segir í yfir­lýs­ingu frá Sveini Eyjólfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár