Sagði börnum að þau væru „sexí“ skömmu eftir að hann fékk uppreist æru

Hjalti Sigurjón Hauksson átti í sam­skiptum við ungar víetnam­skar stúlkur á sam­fé­lags­miðlum meðan umsókn hans um upp­reist æru var til með­ferðar í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu og eftir að hann var sæmdur óflekk­uðu mann­orði af íslenska rík­inu.

Sagði börnum að þau væru „sexí“ skömmu eftir að hann fékk uppreist æru

Hjalti Sigurjón Hauksson, maður sem dæmdur var fyrir að mis­nota stjúp­dóttur sína nær dag­lega í 12 ár,  tjáði sig við barn­unga víetnamska stúlku á Facebook þann 18. des­em­ber 2016, nokkrum vikum eftir að íslenska ríkið sæmdi hann óflekk­uðu mann­orði. Stúlkan er nýbyrjuð í fram­halds­skóla í Víetnam, og má því ætla að hún sé 15 eða 16 ára gömul. Hjalti segir í ummælum sínum til stúlkunnar að hún sé kyn­þokka­full. „Meiri­háttar Falleg og Sexí Algjör Demantur.“ 

Sams konar ummæli frá Hjalta er að finna undir myndum af fleiri víetnömskum stúlkum, meðal ann­ars stúlku sem er fædd árið 2004. 

„Meiri­háttar Falleg og Sæt Algjör 
Demantur Spes Sexí Kv Hjalti“

„Meiri­háttar Falleg og Spes Sexí,“ skrif­aði Hjalti til einnar þeirra fimm dögum áður en hann fékk upp­reist æru. Þremur dögum eftir að for­seti stað­festi stjórn­sýslu­at­höfn­ina sagði Hjalti tveimur stúlkum að þær væru „fal­legar saman“. Í febr­úar síð­ast­liðnum skrif­aði hann undir mynd af enn ann­ari stúlku: „Meiri­háttar Falleg ogSætAl­gjör Dem­ant­ur­Spes Sexí KvHjalti.“

Sæmdur óflekkuðu mannorði

Hjalti Sigurjón var dæmdur í fimm og hálfs árs fang­elsi árið 2004 fyrir að hafa nauðgað stjúp­dóttur sinni nær dag­lega frá því hún var um 5 ára gömul þar til hún var tæp­lega 18 ára. Um er að ræða þyngsta dóm sem fallið hafði vegna kyn­ferð­is­brota gegn barni á þessum tíma, en Hæsti­réttur taldi mann­inn hafa mis­notað frek­lega vald sitt yfir stúlkunni sem stjúp­faðir, brotið ítrekað og gróf­lega gegn henni og valdið henni djúp­stæðum skaða. 

Ólöf Nordal, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, lagði til við for­seta Íslands í fyrra að Hjalti fengi upp­reist æru og óflekkað mann­orð, en bréfið var und­ir­ritað af Guðna Th. Jóhann­essyni for­seta þann 16. sept­em­ber og öðl­að­ist þá form­legt gildi. Um þetta leyti var Hjalti virkur á sam­fé­lags­miðlum, en asískar stúlkur eru í miklum meiri­hluta á vina­lista hans á Facebook.

Eins og fram kom í umfjöllun Stund­ar­innar sýndi Hjalti aldrei iðrun og neit­aði stað­fast­lega sök fyrir dómi. Gunnar Magnús Diego, maður sem starf­aði um tíma á sama vinnu­stað og Hjalti Sigurjón Hauksson, lýsir kynnum sínum af Hjalta í Facebook-færslu sem vakið hefur mikla athygli. Segir Gunnar að Hjalti hafi full­yrt við sig að hann og stúlkan sem hann mis­not­aði hefðu átt í ást­ar­sam­bandi og hann væri raunar bjarg­vættur hennar. Hjalti hafi ekki séð neitt athuga­vert við gjörðir sínar og því sæti furðu að hann hafi fengið upp­reist æru.

Þegar Stundin hafði sam­band við Hjalta í síð­ustu viku kvart­aði hann undan því að níðst hefði verið á sér og sagð­ist hafa verið dæmdur án sann­ana. Rétt er að taka fram að bæði Hér­aðs­dómur Reykja­víkur og Hæsti­réttur Íslands töldu full­sannað að mað­ur­inn hefði brotið gróf­lega og ítrekað gegn stjúp­dóttur sinni. Hjalti kvart­aði einnig undan því að sagðar væru fréttir af við­kvæmum málum: „Það eru frétt­irnar sem pína fólkið mest. Það er skelfi­legt.“

Lög banna að málið sé rifjað upp 

Veiting upp­reistar æru hefur verið tals­vert til umræðu und­an­farnar vikur eftir að greint var frá því að Robert Downey, sem áður hét Róbert Árni Hreið­ars­son, hefði verið veitt „óflekkað mann­orð“ með stað­fest­ingu for­seta Íslands og dóms­mála­ráð­herra.  Robert var dæmdur í þriggja ára fang­elsi árið 2008 fyrir að brjóta gegn fjórum stúlkum, einni sem var fjórtán ára þegar brotin voru framin og þremur sem voru fimmtán ára.

Á grund­velli núgild­andi meið­yrða­laga geta afbrota­menn sem hlotið hafa upp­reist æru farið í æru­meið­ing­ar­mál við þá sem rifja upp afbrot þeirra. Þannig segir í 238. gr. almennra hegn­ing­ar­laga: „Hafi maður, er sætt hefur refsi­dómi fyrir ein­hvern verknað, síðar öðl­ast upp­reist æru, er ekki heim­ilt að bera hann framar þeim sökum, og leysir sönnun því ekki undan refs­ingu, ef svo stendur á.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

FréttirKynferðisbrot

Myndir af neyð­ar­mót­töku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heim­ilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á verj­anda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar. Guðný segir ótækt að ger­endur í kyn­ferð­is­af­brota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að við­kvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lög­regl­unnar.“

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár