„Áfall“ að heyra af meðmælum föður síns

Bjarni Bene­dikts­son segir það hafa verið áfall að heyra af með­mæl­enda­bréfi föður síns fyrir Hjalta Sigurjón Hauksson, dæmdan barn­a­níð­ing. Sjálfur gæti hann aldrei skrifað undir slíkt með­mæla­bréf og muni aldrei reyna að verja þá gjörð.

„Áfall“ að heyra af meðmælum föður síns
Bjarni í Valhöll Fékk að vita frá dóms­mála­ráð­herra í júlí að faðir hans væri með­mæl­andi í einu umdeildasta þjóð­máli þessa árs, en kvaðst hafa verið beð­inn um trúnað. Mynd: Heiða Helgadóttir

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra segir það hafa verið áfall að kom­ast að því að faðir hans hafi skrifað með­mæla­bréf fyrir Hjalta Sigurjón Hauksson, dæmdan barn­a­níð­ing, þegar hann hlaut upp­reist æru.

„Í þess­ari viku kom fram að faðir minn hefði verið umsagn­ar­að­ili í einu þess­ara mála. Ég vil taka það fram hér að það var mér áfall að heyra af því. Ég hefði ekki getað sjálfur skrifað undir slíkt með­mæla­bréf og ég mun aldrei reyna að verja þá gjörð,“ sagði Bjarni á blaða­manna­fundi í Valhöll fyrr í dag. 

Hann sagði hins vegar að þegar honum bár­ust þær upp­lýs­ingar, seint í júlí, þá hafi dóms­mála­ráðu­neytið verið búið að ákveða að það bæri að fara var­lega með allar upp­lýs­ingar af þessum toga. „Þannig var mér tjáð þegar ég átti sam­skipti við dóms­mála­ráð­herra að við værum hér að ræða um trún­að­ar­upp­lýs­ingar sam­kvæmt nið­ur­stöðu ráðu­neyt­is­ins frá því í júní í öðru máli. Þetta var dálítið vanda­söm staða. Þarna var ég kom­inn með upp­lýs­ingar um það að inni í kerf­unum væri mál, sem svo sem ekki var í fjöl­miðla­um­ræð­unni á þeim tíma. Það var eng­inn að tala um það til­tekna mál neins staðar á þeim tíma, meðal ann­ars vegna þess að í und­ir­liggj­andi dómi sem þar er að baki er engin nöfn að finna af til­lit­semi við brota­þol­ann. Ég tók þá ákvörðun að þetta mál myndi ég með­höndla með þeim hætti sem dóms­mála­ráðu­neytið hafði þá þegar ákveðið, það er að segja sem trún­að­ar­mál.“  

„Ég hef aldrei á neinum tíma­punkti beitt mér fyrir því að mál­inu yrði stungið undir stól.“

Þá sagði Bjarni að þar sem sam­bæri­legt mál væri þá þegar til máls­með­ferðar hjá úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál þá þyrfti málið fyrst að hafa sinn gang þar. Hann hafi ekki getað séð fyrir hver nið­ur­staða nefnd­ar­innar yrði. 

„Þegar ég stóð í þessum sporum þá varð mér mest umhugað um það að þetta mál fengi enga sér­með­ferð og lúti sömu lögum og reglum og sam­bæri­leg mál. Ég hef aldrei á neinum tíma­punkti beitt mér fyrir því að mál­inu yrði stungið undir stól, því yrði haldið frá mönnum, eða með ein­hverjum hætti yrði reynt að hylma yfir máls­með­ferð­ina. En það er að miklu leyti það sem umræða vik­unnar hefur jú snú­ist um.“

Bjarni í ValhöllÚtskýrði mál sitt á blaða­manna­fundi í Valhöll, þar sem þing­menn og ráð­herrar flokks­ins sátu á fremsta bekk ásamt frétta­mönnum.

 

Sagði frá eftir fyrirspurn fjölmiðla

„Mér var það síðan ljóst fyrir nokkrum dögum síðan, vegna þess að fjöl­miðlar höfðu lagt fram fyr­ir­spurn sem gaf til kynna að þeir hefðu þá þegar upp­lýs­ingar um þetta við­kom­andi umsagn­ar­bréf föður míns, þá varð mér ljóst að það stefndi í opin­bera umfjöllun um það mál, alveg óháð nið­ur­stöðu úrskurð­ar­nefnd­ar­innar,“ segir Bjarni. 

Þess má geta að Stundin sendi fyr­ir­spurn á dóms­mála­ráðu­neytið í síð­ustu viku, þann 6. sept­em­ber, sem ekki var svarað þrátt fyrir ítrek­anir. Bjarna var hins vegar gert við­vart um málið.

Fyr­ir­spurnin var svohljóð­andi:

1. Tengist einn af umsagn­ar­að­ilum Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar, vegna upp­reistar æru hans, for­sæt­is­ráð­herra nánum fjöl­skyldu­böndum? 

2.  a) Ef já, vissi dóms­mála­ráð­herra af fjöl­skyldu­tengsl­unum þegar ákveðið var að upp­lýsa ekki um nöfn umsagn­ar­að­ila þeirra sem fengið hafa upp­reist æru og að svara ekki fyr­ir­spurnum þolenda um málin?  b) Upplýsti for­sæt­is­ráð­herra aðra ráð­herra um tengsl sín við umsagn­ar­að­ila eins af umsækj­endum um upp­reist æru þegar málin voru afgreidd úr rík­is­stjórn á haust­mán­uðum 2016?

Bjarni sagði Óttari Proppé, for­manni Bjartrar fram­tíðar, og Benedikt Jóhann­essyni, for­manni Við­reisnar, hins vegar frá mál­inu á mánu­dag, eftir að úrskurður úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál féll og óum­flýj­an­legt var orðið að kom­ast hjá því að tengsl for­sæt­is­ráð­herra við einn með­mæl­end­anna yrðu opin­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár