Bjarni ákvað að láta formennina vita eftir að Stundin spurði út í málið

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra greindi Benedikt Jóhann­essyni og Óttari Proppé frá því að faðir hans væri einn með­mæl­enda, vegna fyr­ir­hug­aðrar fjöl­miðlaum­fjöll­unar um málið. Stundin sendi fyr­ir­spurn í síð­ustu viku en fékk ekki svör.

Bjarni ákvað að láta formennina vita eftir að Stundin spurði út í málið

Bjarni Bene­dikts­son við­ur­kenndi á fundi í Valhöll rétt í þessu að hann hefði leynt nánum tengslum sínum við með­mæl­anda í málum sem varða upp­reist æru.

Hann ákvað fyrst að upp­lýsa flokks­for­menn Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar um að faðir hans væri með­mæl­andi eins aðil­ans eftir að Stundin sendi dóms­mála­ráðu­neyt­inu fyr­ir­spurn.

Bjarni fékk upp­lýs­ingar um málið í lok júlí frá Sigríði Andersen dóms­mála­ráð­herra, en segir að ráðu­neyti hennar hafi verið búið að ákveða að halda trúnað um málið. Sjálfur hafi hann því einnig þagað um málið. 

„Mér var það síðan ljóst fyrir nokkrum dögum síðan vegna þess að fjöl­miðlar höfðu lagt fram fyr­ir­spurn sem gaf til kynna að þeir hefðu þeir þá þegar upp­lýs­ingar um þetta,“ sagði Bjarni. „Stefndi í opin­bera umfjöllun um þetta mál óháð nið­ur­skurði úrskurð­ar­nefndar,“ bætti hann við.

Bjarni upp­lýsti þannig ekki um tengsl sín fyrr en hann varð þess áskynja að upp um þau gæti kom­ist.

Fyrirspurn ekki svarað

Stundin sendi fyr­ir­spurn á dóms­mála­ráðu­neytið í síð­ustu viku, þann 6. sept­em­ber, sem ekki var svarað þrátt fyrir ítrek­anir. Hún var svohljóð­andi:

1. Tengist einn af umsagn­ar­að­ilum Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar, vegna upp­reistar æru hans, for­sæt­is­ráð­herra nánum fjöl­skyldu­böndum? 

2.  a) Ef já, vissi dóms­mála­ráð­herra af fjöl­skyldu­tengsl­unum þegar ákveðið var að upp­lýsa ekki um nöfn umsagn­ar­að­ila þeirra sem fengið hafa upp­reist æru og að svara ekki fyr­ir­spurnum þolenda um málin?  b) Upplýsti for­sæt­is­ráð­herra aðra ráð­herra um tengsl sín við umsagn­ar­að­ila eins af umsækj­endum um upp­reist æru þegar málin voru afgreidd úr rík­is­stjórn á haust­mán­uðum 2016?

Fundar með forseta á morgun

„Ég mun beita mér fyrir því að það verði kosið á Íslandi sem allra fyrst. Þessi rík­is­stjórn hefur tapað meiri­hluta sínum á þing­inu,“ sagði Bjarni á fund­inum.

 Hann seg­ist vilja kjósa í nóv­em­ber.

 Forseti Íslands mun funda með Bjarna klukkan 11 á morgun.

„Þessi staða hefur að mínu áliti skap­ast að óþörfu,“ sagði Bjarni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár