Það ætti eiginlega að vísa Sigríði Andersen úr landi, frekar en hinum barnungu stúlkum Mary og Haniye og aðstandendum þeirra.
Með hrokafullum og hryssingslegum yfirlýsingum sínum hefur Sigríður sýnt að hún hefur ekki þann félagsþroska og þá mannlegu samkennd með öðru fólki sem ætti að vera skilyrði þess að fá að fara með vald.
„Nei, það kemur ekki til greina endurskoða mál sem dúkka hérna tilviljanakennt upp í umræðunni. Það kemur ekki til greina af minni hálfu sem ráðherra að taka fram fyrir hendur á sjálfstæðri stjórnsýslustofnun eins og kærunefnd í málum sem hafa fengið tvöfalda málsmeðferð hér á landi,“ sagði Sigríður í viðtali við Ríkisútvarpið.
Burtséð frá því að það kom sannarlega til greina hjá Sigríði Andersen að hafa að engu álit dómnefndar um dómaraefnin á dögunum, þá er fyrirlitningin í orðum hennar slík að það er alveg óboðlegt.
Mál þessara stúlkna hafa ekki „dúkkað hérna upp tilviljanakennt“. Þau hafa komist í sviðsljósið vegna þess að þótt við getum kannski ekki veitt öllum skjól sem hingað vilja leita, þá er alveg óvenjulega grimmilegt að vísa þessum stúlkum og fólkinu þeirra burt.
Og ég vona að ég þurfi ekki að útlista það nánar.
Því fólk er ekki tölur á blaði, þótt útlendingastofnun og kærunefnd virðast telja svo vera.
Í þessu sambandi er kannski rétt að minna að Sigríður Andersen „dúkkaði tilviljanakennt upp“ sem ráðherra út af einhverju innanflokksmambói í Sjálfstæðisflokknum.
Enginn bað um hana, og ég get fullvissað Sigríði um að afar fáir vilja hana á ráðherrastóli.
Nei, auðvitað á ekki að vísa Sigríði Andersen úr landi.
Það var stílbragð að slá því fram.
Hún veldur Íslandi að vísu miklu meira og afdrifaríkari tjóni en bæði Haniye og Mary munu nokkru sinni gera.
Samt væri of mikið af því góða að vísa henni úr landi.
En það á hiklaust að vísa þessum rudda úr ráðherrastól.
Hún á ekki að fara með vald yfir öðru fólki, því hún ræður ekki við það.
Athugasemdir