Ekki skoðað hvort styrkveitendur væru í skattaskjóli

„Við höfum ekki sett okkur aðrar mælistikur en lögin, enda eru þau alveg nógu flókin og íþyngj­andi,“ segir fram­kvæmda­stjóri Við­reisnar.

Ekki skoðað hvort styrkveitendur væru í skattaskjóli
Formaður og fram­kvæmda­stjóri Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Við­reisnar, og Birna Þór­ar­ins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Við­reisnar, sam­þykktu styrki frá aflands­fé­lagi. Mynd: Viðreisn

Ekkert er því til fyr­ir­stöðu sam­kvæmt lögum að stjórn­mála­sam­tök séu styrkt af eig­endum eða dótt­ur­fé­lögum félaga í skatta­skjólum. Samkvæmt árs­reikn­ingi Við­reisnar þáði flokk­ur­inn styrk frá fyr­ir­tæk­inu Aztiq Pharma ehf. í fyrra. Félagið teng­ist fjár­fest­unum Róberti Wessman og Árna Harð­ar­syni og er alfarið í eigu félags­ins Aztiq Cayman L.P á Cayman-eyjum. Áður hefur Stundin greint frá því að Óli Björn Kárason, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis, þáði próf­kjörs­styrk frá fyr­ir­tæki sem kemur fyrir í Panama­skjöl­unum vegna hlut­deildar í aflands­fé­lagi á Bresku Jóm­frú­areyj­unum.

Birna Þór­ar­ins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Við­reisnar, segir að ekki hafi verið skoðað sér­stak­lega hvort fjár­styrkir til flokks­ins kæmu frá eig­endum eða dótt­ur­fé­lögum félaga í skatta­skjólum. „Við fylgdum lög­unum og þar er skýrt tekið fram frá hverjum má ekki taka við fram­lögum,“ segir hún og vísar til ákvæðis í lögum um fjár­mál stjórn­mála­sam­taka þar sem fram kemur að óheim­ilt sé að veita við­töku fram­lögum frá erlendum rík­is­borg­urum, fyr­ir­tækjum eða öðrum aðilum sem skráðir eru erlendis. „Við höfum ekki sett okkur aðrar mælistikur en lögin, enda eru þau alveg nógu flókin og íþyngj­andi.“ 

Sveinn Arason rík­is­end­ur­skoð­andi stakk upp á því á dög­unum að Alþingi end­ur­skoð­aði hámarks­upp­hæð fjár­styrkja sem ein­stak­lingar og lög­að­ilar mega veita stjórn­mála­sam­tökum. Þetta kom fram í við­tali við hann á RÚV eftir að greint var frá háum fjár­styrkjum Helga Magn­ús­sonar fjár­festis til Við­reisnar. Eins og Stundin greindi frá á fimmtu­dag bendir ekk­ert til ann­ars en að Viðreisn hafi fylgt laga­bók­stafnum þegar flokk­ur­inn tók við 1,6 millj­ónum króna frá Helga félögum sem eru alfarið í hans eigu, enda túlkar Rík­is­end­ur­skoðun laga­á­kvæði um tengda aðila með þeim hætti að Helgi, sem ein­stak­lingur, sé ekki tengdur þeim félögum, lög­að­ilum, sem hann á 100 pró­senta eign­ar­hlut í.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár