Flutti til Íslands eftir að hún kynntist eiginmanninum á netinu

Alex­andra Guð­munds­son hefur síð­ustu ár séð um mann­inn sinn, Hafstein, en eftir að hann lést hefur hún fundið tóm í líf­inu. Hún hafði flutt með honum til Íslands frá Rúmeníu.

Flutti til Íslands eftir að hún kynntist eiginmanninum á netinu
Alex­andra Flutti til Íslands með mann­inum sínum, en nú er hann fall­inn frá. Mynd: Heiða Helgadóttir

Alex­andra Guð­munds­son er frá Rúmeníu. Hún kynnt­ist Haf­steini Þór Guð­munds­syni í gegnum inter­netið fyrir um ára­tug og giftu þau sig í Rúmeníu um tveimur árum síðar. Haf­steinn, sem lést í fyrra, var með arf­genga heila­blæð­ingu og fluttu þau til Íslands eftir eins og hálfs árs búestu í Rúmeníu eftir að hann veikt­ist þar alvar­lega. Alex­andra hugs­aði um hann næstu árin. Hún hefur síðan unnið sem sjálf­boða­liði, meðal ann­ars hjá Hjálp­ræð­is­hernum. Hún segir að á Íslandi vilji hún búa. 

„Rúmenía er mjög fal­legt land. Ég er frá hér­að­inu Transil­vaníu og kann­ast flestir við Drakúla sem var sagður hafa verið þaðan,“ segir Alex­andra Guð­munds­son, sem var áður með eft­ir­nafnið Suciu.

Hún er einka­barn. For­eldrar hennar skildu þegar hún var tveggja ára og lést faðir hennar nokkrum árum síðar. Móðir hennar, sem er tón­list­ar­kenn­ari, býr á Ítalíu.

Sjálf er Alex­andra mennt­aður tón­list­ar­kenn­ari og vann sem slíkur í barna­skóla.

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár