Logi sakar Ingu Sæland um að hlaupa undan krassandi yfirlýsingum sínum

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir ekki þýða fyrir Ingu Sæland, for­mann Flokks fólks­ins, að kasta fram krassandi ummælum og hlaupa svo frá þeim jafn­harðan.

Logi sakar Ingu Sæland um að hlaupa undan krassandi yfirlýsingum sínum
Formenn takast á Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, svarar Ingu Sæland, for­manni Flokks fólks­ins.

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, gagn­rýnir Ingu Sæland, for­mann Flokks fólks­ins, fyrir að „kasta fram krassandi ummælum, vænt­an­lega til að fá athygli, hlaupa svo frá þeim jafn­harðan, segj­ast vera mis­skil­inn og jafn­vel verða fyrir óhróðri.“

Inga nefnir Loga á nafn í við­tali við DV í dag þar sem hún vísar á bug ásök­unum um að hún sé að etja saman hæl­is­leit­endum og öryrkjum. Hennar gagn­rýni snú­ist um langan máls­með­ferð­ar­tíma hjá Útlend­inga­stofnun. „Þeir segja að ég sé að etja saman hæl­is­leit­endum og öryrkjum, það er ósatt, það er ein­ungis þannig sem þeir kjósa að túlka það sem ég segi, spurn­ing hvaða stimpil þeir vilja setja á sjálfa sig. Fólki væri nær að snúa bökum saman um þær hug­sjónir að útrýma hér fátækt en að reyna að ata okkur auri og snúa út úr mál­flutn­ingi mínum,“ segir Inga meðal ann­ars í við­tal­inu í DV. 

Logi rifjar hins vegar upp ummæli sem höfð voru eftir Ingu í frétt á Eyjunni í mars síð­ast­liðnum. Ummælin lét Inga falla í færslu á Facebook, sem hún síðar eyddi. „Þar stingur hún uppá að fjár­magn sem fari í að aðstoða hæl­is­leit­endur, á meðan umsóknir þeirra eru teknar fyrir, verði frekar nýtt til að hjálpa fátækum Íslend­ingum. Í færsl­unni sagði hún orð­rétt: „Hæl­is­leit­endur sem for­dæmin sýna að munu ekki fá hæli hér. Hæl­is­leit­endur sem hafa frían leigu­bíl, (vilja frekar taka leigu­bíl en nota strætó) Bónu­skort, debet­kort (með inn­eign frá ísl. rík­inu) fría lækn­is­þjón­ustu, hús­næði, tann­lækni, sál­fræð­ing, og fl. og fl.“ Í fram­hald­inu viðr­aði hún þá skoðun hvort ekki mætti nýta það fjár­magn sem færi í að „halda uppi þessu fólki“ í mis­langan tíma áður en því væri vísað burt,“ skrifar Logi. 

Þá segir hann nið­ur­skurð í málum hæl­is­leit­enda ekki vera svar í báráttu gegn fátækt. Ráðast þurfi í stærri breyt­ingar á skatt­kerf­inu til að ná raun­veru­legum árangri. „Ég vil að Ísland geri sitt til þess að hjálpa hæl­is­leit­endum og flótta­mönnum sem best og sem betur fer hefur tek­ist að ná póli­tískri sam­stöðu um þessi mál, þó eflaust þurfi að gera betur. Ég ítreka það að brýn­asta verk­efni íslenskra stjórn­mála er bar­átta fyrir auknum jöfn­uði og útrým­ing fátæktar. En ég end­ur­tek einnig að Sam­fylk­ingin mun ekki reyna að verða sér úti um atkvæði með því að fiska í grugg­ugu vatni, ala á ótta og tor­tryggni,“ skrifar Logi. 

Líkti sjálfri sér við Marine Le Pen

Flokkur fólks­ins náði ekki inn manni í síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum en mæld­ist með 8,4 pró­sent fylgi í nýlegri könnun Gallup. Inga hefur að und­an­förnu vakið tals­verða athygli fyrir ummæli sín, en í við­tali á RÚV á dög­unum sagð­ist hún meðal ann­ars vera sátt við að vera kölluð popúlisti og líkti sjálfri sér við Marine Le Pen, fyrr­ver­andi for­mann frönsku Þjóð­fylk­ing­ar­innar. Ég er senni­lega svona Marine Le Pen týpa sem er verið að mála mig af þeim sem munu hvort sem er aldrei kjósa flokk­inn. Af okkur stafar ógn vegna þess að við erum boð­beri breyt­inga. Við erum ein­læg og heið­ar­leg og við vinnum af hug­sjón og við ætlum að halda því áfram og við erum bara sátt við að vera popúlistar. Ég ætla að segja að það þýði bara það að vera vin­sæll í dag,“ sagði hún meðal ann­ars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár