Börn fanga, afskipt og einmana

Börn fanga glíma við marg­vís­lega erf­ið­leika í upp­vext­inum sem getur haft mikil og langvar­andi áhrif á líf þeirra og geð­heilsu. Hvergi virð­ist vera gert ráð fyrir þessum börnum í kerf­inu og engin úrræði standa þeim til boða. Þvert á móti eru þau jað­ar­sett, stimpluð og glíma við skiln­ings­leysi. Í stað þess að veita ungum dreng stuðn­ing­inn sem hann þurfti þegar faðir hans fór í fang­elsi var hann settur í hlut­verk vand­ræða­geml­ings, þar til hann gekkst við því sjálfur og var sendur í skóla fyrir vand­ræðaung­linga.

Börn fanga, afskipt og einmana

Syst­ur­sonur æsku­vin­konu hennar var dæmdur í sextán ára fang­elsi. Í kjöl­farið horfði Svava Dav­íðs­dóttir upp á fjöl­skyld­una ganga í gegnum sorg­ar­ferli. „Áfallið var mikið en það var eng­inn sem greip þau. Þau sátu síðan eftir með afleið­ing­arnar. Mér fannst það svo órétt­látt.“

Svava segir að þetta hafi orðið kveikjan að því að rann­sókn á veru­leika barna fanga varð loka­verk­efni hennar í meist­ara­námi í félags­ráð­gjöf. „Fólki fannst þetta sví­virði­legur glæpur, en þetta er samt barnið þitt. Í dag er þessi kona frá­skilin og flutt úr landi sem virð­ist vera týpísk afleið­ing fyrir aðstand­endur, það er að segja að lífið umturn­ast, og þetta vakti hjá mér þessa spurn­ingu. Hvað með börn í þessum aðstæðum? Þau geta sér enga björg veitt og eru föst í aðstæðum þar sem þau eru dæmd fyrir það hverjir for­eldrar þeirra eru.“

Börnin gleymast

Þegar Svava fór að skoða það kom í ljós að börn …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár