Inngróið skilningsleysi í kerfinu öllu á afleiðingum kynferðisbrota

Eftir fund stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar segir Svandís Svav­ars­dóttir þing­kona að ferlið sem lá að baki þeirri ákvörðun að veita Robert Downey upp­reist æru sé allt of vél­rænt og end­ur­spegli skiln­ings­leysi á eðli og afleið­ingum kyn­ferð­is­brota gegn börnum. Skiln­ings­leysi sem sé inn­gróið í allt kerfið og birt­ist einnig í dómi Hæsta­réttar. Nefndin óskaði eftir gögnum máls­ins, en engin efn­is­leg rök lágu fyrir ákvörð­un­inni.

Inngróið skilningsleysi í kerfinu öllu á afleiðingum kynferðisbrota

„Ferlið að baki þess­ari ákvörðun end­ur­speglar inn­byggt skiln­ings­leysi á afleið­ingum kyn­ferð­is­brota í kerf­inu öllu,“ segir Svandís Svav­ars­dóttir, þing­kona Vinstri grænna. Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd fund­aði í morgun um ferlið sem liggur að baki þeirri ákvörðun um að veita upp­reist æru, í kjöl­far þess að Robert Downey fékk æru sína upp­reista og end­ur­heimti í kjöl­farið lög­manns­rétt­indin þrátt fyrir að hafa verið fund­inn sekur um kyn­ferð­is­brot gegn fimm stúlkum.

Auk nefnd­ar­manna sátu á fund­inum ráðu­neyt­is­stjóri inn­an­rík­is­ráðu­neyts­ins og for­maður Lög­manna­fé­lags­ins. Í máli hans kom fram að Lög­manna­fé­lagið lagð­ist gegn ákvörðun Hæsta­réttar um að veita Roberti lög­manns­rétt­indin aftur, slíkt hefði ekki komið til greina í nágranna­löndnum. Í Svíþjóð hefði til dæmis aldrei komið til álita að maður sem hefði framið glæp af þess­ari stærða­gráðu fengi lög­manns­rétt­indin aftur. Á fund­inum óskaði nefndin eftir þeim gögnum sem liggja að baki ákvörð­un­inni og ráðu­neytið sam­þykkti að afhenda þau, en Svandís segir að ferlið að baki ákvörð­un­inni sé allt of vél­rænt.

Formleg skilyrði

„Það sem stendur eftir í mínum huga er fyrst og fremst tvennt. Annars vegar það að svo virð­ist sem ráðu­neytið hafi inn­leitt vél­rænt ferli á und­an­förnum árum og ára­tugum sem að mínu mati getur ekki talist til sóma í rétt­ar­ríki. Það er að segja að það séu ekki efn­is­legar ástæður sem liggja til grund­vallar svo stórri ákvörðun sem þeirri sem upp­reist æra er. Það virð­ist eins og það þurfi bara að upp­fylla form­leg skil­yrði til að fá afgreiðslu á þeirri beiðni hverju sinni. Við óskuðum eftir að fá þau gögn sem liggja fyrir, eða sem lágu til grund­vallar, það er að segja, fyrst og fremst þessar umsagnir, það sem kallað er með­mæli. Vænt­an­lega mun nefndin funda aftur vegna þess.

„Það virð­ist sem það sé inn­gróið skiln­ings­leysi á djúp­stæðum áhrifum kyn­ferð­is­brota í kerf­inu öllu.“

Síðan finnst mér það vera hitt málið sem er almennt til umhugs­unar í þessu efni að það virð­ist sem það sé inn­gróið skiln­ings­leysi á djúp­stæðum áhrifum kyn­ferð­is­brota í kerf­inu öllu og kyn­ferð­is­brotum gegn börnum. Bæði hvað varðar mál­flutn­ings­rétt­indin, að það skuli ekki vera horft til eðlis brota þar, og að Hæsti­réttur skuli vísa í þennan þrönga skiln­ing á lög­unum að brotið sé ekki framið í vinn­unni, að þetta sé ekki brot í starfi hjá við­kom­andi lög­manni. Líka að það sé eng­inn áskiln­aður um að við­kom­andi hafi leit­ast við að ná ein­hvers konar sáttum við sam­fé­lagið og þá sem fyrir brot­unum urðu á sínum tíma.“

Fjársveltur málaflokkur 

Svandís bendir á að fræði­menn og fag­að­ilar sem starfa með þolendum ofbeldis, í Kvenna­at­hvarf­inu, á Stíga­mótum og víðar, haldi því statt og stöðugt fram að það vanti skiln­ing á eðli og afleið­ingum kyn­ferð­is­brota í kerf­inu öllu. Mál Roberts Downey und­ir­striki það. 

„Mér finnst þetta til­tekna mál sýna að við þurfum að gera miklu betur á öllum víg­stöðum. Það þarf að fara yfir þetta allt saman og skoða stöðu þolenda kyn­ferð­is­brota, sönn­un­ar­byrð­ina og allt sem þessum málum við­kemur. Það hefur áður verið rætt en það þarf bara að gera miklu betur í þessum efnum. 

Vilji stjórn­valda end­ur­spegl­ast alltaf í fjár­magni. Það er svo auð­velt að láta gera skýrslur og áætl­anir án þess að fylgja því eftir. Við erum til dæmis með fína áætlun um man­sal á Íslandi en hún er ekki fjár­mögnuð. Við erum með stefnu um að leggja aukna áherslu á þessa mála­flokka en það er ekki fjár­magnað. Raun­veru­legur vilji end­ur­spegl­ast fyrst og fremst í því að setja meiri pen­inga í þessi mál á öllum stöðum, vegna þess að þekk­ingin er fyrir hendi. Þess vegna höfum við und­an­farin ár lagt til breyt­ingar á fjár­laga­frum­varp­inu, þar sem við leggjum til sér­staka fjár­hæð til lög­reglu­emb­ætt­anna um allt land til að efla þennan þátt, en það hefur ekki verið sam­þykkt.“

Skilningsleysi Hæstaréttar

Máls­með­ferðin end­ur­spegli fyrst og fremst þekk­ing­ar­leysi á eðli kyn­ferð­is­brota og afleið­ingum þeirra. „Að láta eins og þú getir bara kallað til ein­hverja tvo fyrr­ver­andi kenn­ara þína eða þetta sé bara vél­ræn afgreiðsla. Við vitum ekk­ert hvað þessir tveir ein­stak­lingar eru að segja í sinni grein­ar­gerð eða hvað þeir hafa fyrir sér. Kemur eitt­hvað fram þar um breytta afstöðu við­kom­andi til sinna brota eða áherslu á yfir­bót? Ég bara veit það ekki. Við vitum ekk­ert hvort það standi kannski bara að við­kom­andi hafi sýnt af sér góða hegðun í einni setn­ingu. Þetta virk­aði á mig eins og þetta væri bara rútína. Þetta væri bara forms­at­riði. Það væri ekk­ert raun­veru­legt inni­hald þarna.“

„Þetta virk­aði á mig eins og þetta væri bara rútína. Þetta væri bara forms­at­riði. Það væri ekk­ert raun­veru­legt inni­hald þarna.“

Sama skiln­ings­leysi end­ur­spegl­ast í nið­ur­stöðu Hæsta­réttar, segir hún, um end­ur­heimt lög­manns­rétt­inda. „Þar finnst mér við enn og aftur standa frammi fyrir algjöru skiln­ings­leysi á eðli þess­ara brota. Hæsti­réttur vísar í lög­manna­lögin og segir að þar sem brotin voru ekki framin í vinn­unni eigi það ekki við.“

Fyr­ir­komu­lagið á hinum Norð­ur­lönd­unum þegar upp­reist æra er veitt er mun strang­ara en hér á landi. Þá eiga afbrota­menn mun erf­ið­ara með að öðl­ast ýmis borg­ara­leg rétt­indi á ný hafi þeir gerst sekir um alvar­leg brot. Í dómi Hæsta­réttar Noregs sem féll árið 2009 var ein­stak­lingi hafnað að fá lög­manns­rétt­indi sín á nýjan leik. Maðurinn hafði gerst sekur um fjár­svik og ýmis bók­halds­brot og dæmdur í 18 mán­aða fang­elsi vegna þeirra.

Engin efnisleg rök

Fund­ur­inn var skráður sem venju­legur nefnd­ar­fundur og lok­aður almenn­ingi og fjöl­miðlum. Stundin hefur ítrekað óskað eftir upp­lýs­ingum frá ráðu­neyt­inu um ferlið sem lá að baki þess­ari ákvörðun en fjöl­mörgum spurn­ingum er enn ósvarað. Svandís segir að sam­skipti ráðu­neyt­is­ins við fjöl­miðla hafi komið til tals á fund­inum en því hafi verið svarað með því að starfs­menn væru margir í fríi.

Líkt og Stundin hefur greint frá þá getur það varðað refs­ingu sam­kvæmt núgild­andi hegn­ing­ar­lögum að rifja upp afbrot dæmdra manna sem hafa hlotið upp­reist æru. Þetta var einnig rætt á fund­inum, en hluti nefnd­ar­manna vildi meina að tján­ing­ar­frels­is­á­kvæði stjórn­ar­skránnar hefði meira vægi en þetta ákvæði hegn­ing­ar­lag­anna. 

Bent hefur verið á að hópur fólks hafi sótt um upp­reist æru en ekki fengið, en á fund­inum í morgun kom fram að í öllum til­vikum hafi því verið hafnað vegna form­legra van­kanta. Þá hafi ekki verið lið­inn nægi­lega langur tími frá því að dómur féll, við­kom­andi hefur verið með annað mál til umfjöll­unar í rétt­ar­vörslu­kerf­inu eða annað slíkt. „Það eru einu dæmin um að við­kom­andi hafi ekki fengið upp­reist æru þegar óskað hefur verið eftir því. Það eru engin efn­is­leg rök sem liggja þar að baki,“ segir Svandís.

Á fund­inum kom fram að ráðu­neytið starfar ekki eftir neinum verk­lags­reglum né sé horft til leið­bein­andi sjón­ar­miða þegar umsóknir um upp­reista æru eru teknar fyrir. Eitt af skil­yrðum þess að menn hljóta upp­reista æru er að þeir hafi sýnt af sér góða hegðun. „Það er ein­fald­lega þannig að ef ein­stak­lingur seg­ist hafa sýnt af sér góða hegðun þá er tekið mark á því enda gilda engar reglur um hvernig það er metið,“ segir Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata og nefnd­ar­maður í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd.

Velja sína valinkunnu menn sjálfir

Þá kom ekki fram hvernig val­in­kunnir menn eru metnir. „Það virð­ist vera að ein­stak­ling­ur­inn sjálfur sem óskar eftir upp­reist æru bendi á þessa val­in­kunnu menn. Þetta ku oft vera kenn­arar, með­ferð­ar­að­ilar eða ein­hverjir slíkir. Það eru ein­hver dæmi um að ráðu­neytið fylgi því eftir með sím­tölum en þetta eru ekki aðilar sem ráðu­neytið útnefnir eða neitt slíkt. Við spurðum um þetta,“ segir Svandís. Þá segir Jón Þór svar ráðu­neyt­is­ins hafa verið að engar reglur væru til staðar hjá ráðu­neyt­inu þegar meta ætti hverjir gætu talist val­in­kunni ein­stak­lingar.

Svandís segir að nefndin hafi ekki enn fengið  upp­lýs­ingar um hvaða val­in­kunnu menn hafi mælt með því að Robert Downey myndi fá upp­reist æru. „Við höfum ekki upp­lýs­ingar um það. Við óskuðum eftir gögnum og það kom fram að ráðu­neytið kvaðst myndu láta okkur fá gögnin, fyrst og fremst inni­hald þess­ara umsagna.“

 „Við óskuðum eftir gögn­unum og ég vænti þess að við fáum þau.“

Aðspurð hvort nöfnin muni ekki fylgja þeim gögnum ítrekar hún: „Við óskuðum eftir gögn­unum og ég vænti þess að við fáum þau. Það er eina leiðin til þess að við getum ræktað okkar eft­ir­lits­skyldu gagn­vart ráðu­neyt­inu, ráð­herr­anum og fram­kvæmda­vald­inu.“

Gögn sem nefnd­inni eru afhent eru alla­jafna opin­ber gögn og aðgengi­leg almenn­ingi. „Það þarf að óska sér­stak­lega eftir því að þau séu afhent í trún­aði til að svo sé. Mér skilst að það sé til með­ferðar mál sem varðar þessi gögn hjá úrskurð­ar­nefnd upp­lýs­inga­mála og vænt­an­lega kemur ein­hver nið­ur­staða þar. Almennt er ég á þeirri skoðun að slíkar upp­lýs­ingar eigi að liggja fyrir og að gögn eigi að birt­ast almenn­ingi. Ég held að það sé eina leiðin til þess að almenn­ingur geti treyst vald­höfum á hverjum tíma.“

Ábyrgðin ráðherra 

Á end­anum sé það alltaf ráð­herra sem ber ábyrgð á þess­ari ákvörðun. „Samkvæmt íslenskri stjórn­skipan ber ráð­herra ábyrgð.“ Bjarni Bene­dikts­son, sem var starf­andi dóms­mála­ráð­herra, í fjar­veru Ólafar Nordal og kvitt­aði upp á veit­ingu upp­reistar æru, hefur hins vegar hafnað þeirri ábyrgð. „Nei, ég tók við nið­ur­stöðu úr ráðu­neyt­inu sem hafði fengið sína hefð­bundnu með­ferð,“ sagði Bjarni í við­tali við RÚV þegar hann var spurður hvort hann hefði átt aðkomu að mál­inu. „Það er vegna þess að ráðu­neytið hefur komið upp þessu vél­ræna ferli. Ég tel það ekki stand­ast skoðun að ferlið sé svo vél­rænt að und­ir­skrift ráð­herra sé bara gúmmí­stimp­ill. Það getur aldrei verið þannig,“ segir Svandís.

„Ég tel það ekki stand­ast skoðun að ferlið sé svo vél­rænt að und­ir­skrift ráð­herra sé bara gúmmí­stimp­ill“

Þá hefur for­set­inn, Guðni Th. Jóhann­es­son, einnig hafnað því að hafa átt nokkra aðkomu að mál­inu, þótt hann hafi einnig skrifað undir beiðni þess efnis. Í sam­tali við Vísi sagð­ist hann ekki hafa vitað um hvaða mann var að ræða þegar hann skrif­aði undir beiðn­ina. „Þann 16. sept­em­ber í fyrra fékk ég fjórar svona beiðnir. Ég fæ engan rök­stuðn­ing, engin fylgi­gögn, ein­ungis nafn og lengd dóms. Svo segir. „Nú þykja skil­yrði vera fyrir hendi til þess að verða við fram­an­greindri beiðni vil ég leyfa mér að leggja til að yður, for­seti Íslands, mætti þókn­ast að veita nefndum manni upp­reist æru sinnar að því er snertir fram­an­greindan dóm,“ sagði Guðni.

Svandís segir að til að breyta þessu þurfi að breyta stjórn­ar­skránni, „og það eigum við að gera. Svo er spurn­ing hvort for­seti eigi ekki að leita upp­lýs­inga varð­andi hvað liggur að baki hverju sinni. Eiga ekki bæði ráð­herra og for­seti á hverjum tíma að fá upp­lýs­ingar um hvaða sjón­ar­mið liggja að baki þeirri ákvörðun sem er til umfjöll­unar? Það hlýtur að vera.“

Þverpólítískur hópur vinni frumvarpið

Jón Þór segir nauð­syn­legt að þverpólítískur hópur vinni að laga­breyt­ingum um veit­ingu upp­reistar æru. Það þurfi að gera í mik­illi sátt við fag­að­ila og borg­ara á land­inu. Í vik­unni til­kynnti Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra í við­tali við Morg­un­blaðið að hún stefndi á að leggja fram frum­varp um breyt­ingu á upp­reist æru í haust.

„Breyt­ing­arnar á lög­gjöf­inni þarf að vinna fag­lega og mál­efna­lega og þá þarf að horfa til hinna Norð­ur­land­anna þar sem veit­ing upp­reistar æru er bundin mun þrengri og mál­efna­legri skil­yrðum. Þá þætti mér eðli­legra að Alþingi ætti frum­kvæðið að slíkri vinnu fremur en ráðu­neytið sem hefur ekki verið að sinna mál­flokknum vel,“ segir Jón.

Jón segir alla nefnd­ar­menn­inna vera sam­mála um að afbrota­menn eigi að taka út refs­ingar sínar í betr­un­ar­kerfi og fangar eigi að hafa þann mögu­leika að taka á nýjan leik þátt í sam­fé­lag­inu þegar þeir hafa tekið út sína refs­ingu. „Það er þó ekki hægt að end­ur­veita öll borg­ar­leg rétt­indi í öllum til­fellum. Slíku þarf að setja þrengri skorður en þær sem til staðar eru í dag. Það er til að mynda óeðli­legt að læknir geti fengið atvinnu­rétt­indi sín á ný hafi hann myrt sjúk­ling sinn,“ segir Jón.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár