Dreymdi alltaf um að búa í Danmörku

Sandra Dögg Steins­dóttir var sautján ára þegar hún flutti til Dan­merkur í tæpt ár. Hún hafði átt sér þann draum frá barn­æsku og var farin út þremur vikum eftir að hún sá aug­lýst eftir au-pair þar úti. Dvölin hjá nýrri fjöl­skyldu var erfið fyrstu dag­ana en henni fór fljótt að líða betur, lærði að standa á eigin fótum og treysta á sjálfa sig.

Dreymdi alltaf um að búa í Danmörku
Sandra Dögg Sandra ráð­leggur þeim sem fara út sem au-pair að gera sem mest til þess að koma sér sem fyrst inn í menn­ing­una og læra tungu­málið. Það sé svo gaman að geta talað annað tungu­mál reiprenn­andi. Mynd: Heiða Helgadóttir

Allt frá því að Sandra Dögg Steins­dóttir var barn hefur hana langað til þess að búa í Danmörku. „Ég hafði mik­inn áhuga á að læra dönsku og var ágæt í dönsku. Ég var búin að fá leiða á skól­anum og lang­aði til að prófa að gera eitt­hvað nýtt,“ segir Sandra. Þegar hún sá svo aug­lýs­ingu á Facebook-hópnum Íslend­ingar í Kaup­manna­höfn frá dönskum hjónum með tvær litlar stelpur sem bjuggu rétt utan við Kaup­manna­höfn stökk hún á tæki­færið og réði sig til þeirra sem au-pair. Þremur vikum síðar var hún farin út. 

Erfitt í byrjun

Sandra setti sig í sam­band við hjónin og tal­aði nokkrum sinnum við þau á Skype áður en hún fór með for­eldrum sínum til Dan­merkur. Þetta var í ágúst 2014. For­eldrar hennar voru úti í fjóra daga áður en hún fór til fjöl­skyld­unnar, sem býr í bænum Holte, rétt hjá Kaup­manna­höfn.  

„Fyrstu dag­ana hjá …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár