Jón Gnarr heldur áfram í Viðreisn þó að hann hafi tilkynnt úrsögn úr þingflokknum samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar. Samkvæmt þeim sem Heimildin ræddi við var vitað að Jón væri að íhuga þennan möguleika í nokkra daga en svo virðist sem raunverulegar ástæður úrsagnar úr þingflokki séu óljósar.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar áréttar á Facebook síðu sinni að henni þyki vænt um Jón og það breytist ekki þó að hann segi sig úr þingflokknum.
Svo skrifar hún: „Ég hefði auðvitað kosið að hafa Jón áfram í þingflokknum. En ég virði ákvörðun hans og mér þykir vænt um að hann ætli áfram að styðja ríkisstjórnina og þau verkefni sem við höfum tekið okkur fyrir hendur. Mér þykir líka vænt um að hann haldi áfram í Viðreisn og hann er að sjálfsögðu alltaf velkominn aftur í þingflokkinn okkar.“

















































Athugasemdir