Lögreglunni á Austurlandi hefur hvorki borist tilkynning né kæra vegna atviks þar sem fimm þingmenn eru sagðir hafa farið í leyfisleysi í Selárlaug í Vopnafirði. Þá kemur fram í svari frá lögregluembættinu að húsbrot samkvæmt hegningarlögum sæti meðferð hjá lögreglu „að kröfu þess sem misgert er við“, eins og það er orðað í svarinu.
Í ljósi þess að Vopnafjarðarhreppur hefur ekki tilkynnt málið til lögreglu verður það ekki tekið til efnislegrar meðferðar hjá embættinu. Þau sjónarmið birtust þó hjá sveitarstjóra, Birni Ingimarssyni, í samtali við Heimildina fyrr í vikunni að það væri óheimilt að fara í laugina eftir lokun. Hann taldi það ekki til eftirbreytni að þingmenn hefðu farið í laugina.
„Nei, ég bara tel að þetta sé nokkuð sem menn eigi ekki að gera og ég vænti þess að þetta muni ekki endurtaka sig,“ sagði hann.
Áratugir frá óboðnum sundlaugagestum
Allur gangur virðist vera á því hvernig sveitarfélög takast …

















































Athugasemdir