Örmögnun er mest hjá ungu fólki á vinnumarkaði, samkvæmt könnun Prósents sem hefur mælt kulnun á vinnumarkaði síðan árið 2020. Almennt eru fleiri útkeyrðir í lok vinnudags en árið 2025 og fleiri nefna of mörg verkefni og fáliðun sem ástæðu streitu, samkvæmt könnuninni.
Tilfinningaleg örmögnun eftir aldri
Fjöldi vinnudaga á ári.
Tíu prósent mælast með einkenni kulnunar, sem er svipað hlutfall og undanfarin ár. Að meðaltali er fólk útkeyrt í lok vinnudags 68 vinnudaga á ári, samanborið við 61 dag árið 2025. Hækkunin er marktæk en hlutfall þeirra sem eru útkeyrð á hverjum degi hefur aldrei mælst hærra, 14 prósent, samanborið við 9 prósent árið 2025.
Ungt fólk örmagna
Athygli vekur að tilfinningaleg örmögnun er umtalsverð hjá ungu fólki á aldrinum 25–34 ára. Mælt er í dögum og kemur fram í könnun Prósents að örmögnunin nái …

















































Athugasemdir (1)