ESB lofar að gervigreindarlöggjöf verndi Evrópubúa – en dugar hún til?

Gervi­greind­ar­kerfi sem fara sínar eigin leiðir og sífellt hávær­ari við­var­anir um hættur tækn­innar hafa vakið spurn­ingar um hvort lög­gjöf Evr­ópu­sam­bands­ins veiti nægi­lega vernd. Fram­kvæmda­stjórn ESB telur regl­urnar öfl­ugar en þing­menn og sér­fræð­ingar benda á gloppur í lög­gjöf­inni og efast um að sam­bandið sé til­búið að takast á við banda­rísku tækniris­ana.

ESB lofar að gervigreindarlöggjöf verndi Evrópubúa – en dugar hún til?
Áhrif Forseti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins segir að gervi­greind­ar­lög­gjöf sam­bands­ins geri Evrópu kleift að hafa áhrif á alþjóð­lega við­leitni til að setja tækn­inni reglur. Mynd: AFP

Gervi­greind­ar­kerfi sem fara út fyrir þau mörk sem þeim hafa verið sett og sífellt hávær­ari við­var­anir um mögu­legar hörm­ungar af völdum tækn­innar hafa orðið til þess að margir Evr­ópu­búar velta því fyrir sér hvort reglur Evr­ópu­sam­bands­ins um gervi­greind dugi til að vernda þá gegn hugs­an­legum hættum.

Evr­ópu­sam­bandið full­yrðir að svo sé. Gervi­greind­ar­lög­gjöf sam­bands­ins, svo­nefnd AI Act, sé nægi­lega öflug enda skyldi hún fyr­ir­tæki til að meta áhættu og draga úr henni. Brot geti varðað háum sektum eða jafn­vel banni.

Þingmenn Evr­ópu­þings­ins, emb­ætt­is­menn og sér­fræð­ingar virð­ast þó ekki jafn sann­færðir. Þeir benda á gloppur í lög­gjöf­inni og efast um að stjórn­völd ESB séu reiðu­búin að leggja til atlögu við fyr­ir­tækin sem þróa öfl­ug­ustu gervi­greind­ar­kerfin.

Evr­ópu­sam­bandið náði sam­komu­lagi um umfangs­mikla gervi­greind­ar­lög­gjöf árið 2024 en frestaði gild­is­töku hluta hennar. Ekki hefur verið hægt að beita ákvæðum hennar með eft­ir­liti og við­ur­lögum fyrr en í ágúst á þessu ári.

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár