Búið að ræða við öll vitni í tengslum við banaslys

Lög­reglan hefur rætt við um tíu vitni sem voru á vett­vangi þegar banaslys átti sér stað á Krýsu­vík­ur­vegi. Beðið er eftir nið­ur­stöðum úr vett­vangs­rann­sókn.

Búið að ræða við öll vitni í tengslum við banaslys
Klett­ur­inn Fjöl­margir lögðu leið sína á slys­stað og minnt­ust ung­menn­anna með blómum og kertum. Mynd: Golli

Lög­reglan í Hafn­ar­firði hefur rætt við um og yfir tíu vitni í tengslum við banaslys ung­menna í lok ágúst, sam­kvæmt rann­sak­anda og lög­reglu­full­trúa hjá Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Ásdísi Haralds.

Þrjú lét­ust í slys­inu, öku­mað­ur­inn, fæddur 2005, og tvær ungar konur fæddar 2007 og 2009. Slysið varð á Krýsu­vík­ur­vegi við Blá­fjalla­af­leggjar­ann, þar sem öku­maður virð­ist hafa misst stjórn á bif­reið sinni og hafnað á kletti í veg­kanti við beygju sem tók við af blind­hæð.

Myndbönd í dreifingu

Heim­ildin hefur greint frá því að mynd­bönd tengd slys­inu hafi verið í umferð, ann­ars vegar örstutt mynd­brot sem sýnir bif­reið­ina í ljósum logum og hins vegar upp­lýs­ingar úr svoköll­uðu Life360 appi. 

Í því appi sést tölvu­gerð lína sem sýnir jafn­framt að bif­reiðin hafi verið á um 230 kíló­metra hraða. Upp­lýs­ingum varð­andi hrað­ann þarf þó að taka með fyr­ir­vara. Hámarks­hraði á veg­inum er 70 kíló­metrar.

Lög­reglan seg­ist ekki …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár