Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík og formaður borgarráðs, segir að slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hafi ætlað að beita Reykjavíkurborg dagsektum væri húsnæði á vegum borgarinnar ekki gert upp. Sú staða hafi komið upp í júlí og með því að segja upp leigusamningi fá leigjendur frest fram til 1. febrúar á næsta ári til þess að yfirgefa húsnæðið.
Mikill kostnaður fylgir því að gera upp húsnæðin og úr varð að fimmtán leigusamningum í þremur fasteignum borgarinnar, þar á meðal við listafólk úr grasrót listalífs Reykjavíkur, var sagt upp. Þá vekur athygli að eitt húsnæðanna var gert upp fyrir 150 milljónir fyrir fimm árum síðan.
Til marks um alvarleika málsins
„Dagsektirnar eru til marks um alvarleika málsins, því það voru gerðar ítrekaðar athugasemdir og fyrri meirihluti brást ekki nægilega hratt og vel við þeim,“ segir Einar.
Lestin á RÚV fjallaði um málið í þætti sínum og var birt á vef RÚV þar …


















































Athugasemdir