Trump bannar kanadískt áfengi í nýrri lotu tollastríðs

Enn harðn­ar við­skipta­deila Banda­ríkj­anna og Kan­ada með nýj­um toll­um, inn­flutn­ings­banni og hót­un­um gegn kanadísk­um fyr­ir­tækj­um. Mark Car­ney seg­ir Kan­ada til­bú­ið að axla kostn­að­inn af minni efna­hag­stengsl­um við Banda­rík­in.

Trump bannar kanadískt áfengi í nýrri lotu tollastríðs

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hóf nýja lotu í tollastríði sínu við Kanada í gær með því að banna innflutning á áfengi og ýmsum öðrum vörum og hækka tolla á aðrar. Engin merki eru um að deilan sé í rénun.

Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, stóð fastur fyrir en viðurkenndi að minnkandi efnahagstengsl við Bandaríkin hefðu kostnað í för með sér. Hann sagði ávinninginn þó vega þyngra en sársaukann.

Fjöldi kanadískra vara, allt frá dýnum til vélbáta og golfbíla, mun sæta 50 prósenta viðbótartolli frá og með 15. september, samkvæmt tilskipun Trumps sem gefin var út seint í gær.

Innflutningsbannið, sem beinist að ýmsum áfengum drykkjum auk sumra mjólkurvara, svo sem mysu, tekur gildi 29. september, samkvæmt öðrum tilskipunum sem gefnar voru út á sama tíma.

Hefndartollar Kanada höfðu tekið gildi gildi fyrr á þriðjudag og ná til innflutnings frá Bandaríkjunum að verðmæti um 2.400 milljarða króna, þar á meðal afurða …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Kristrún um Trump: „Þetta er bara móðgun við Íslendinga“
StjórnmálBandaríki Trumps

Kristrún um Trump: „Þetta er bara móðg­un við Ís­lend­inga“

Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra seg­ir færslu Don­ald Trump, þar sem Ís­land var sýnt und­ir banda­ríska fán­an­um, al­gjör­lega óvið­eig­andi. Kristrún Frosta­dótt­ir for­sæt­is­ráð­herra seg­ir und­ir­tón færsl­unn­ar fá­rán­leg­an og hana móðg­un við Ís­lend­inga, Kan­ada­menn og Græn­lend­inga. Banda­ríski sendi­herr­ann var kall­að­ur á fund vegna máls­ins.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár