Samfylkingin mælist stærst en Viðreisn tapar fylgi

Sam­fylk­ingin mælist með tæp­lega 30 pró­senta fylgi í nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup og er áfram stærsti flokkur lands­ins. Viðreisn missir tæp tvö pró­sentu­stig frá síð­ustu könnun. Stjórn­ar­flokk­arnir þrír eru saman með 44 pró­senta fylgi en helm­ingur þeirra sem taka afstöðu seg­ist styðja rík­is­stjórn­ina.

Samfylkingin mælist stærst en Viðreisn tapar fylgi

Sam­fylk­ingin mælist með 29,6 pró­senta fylgi í nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup og bætir við sig 1,7 pró­sentu­stigum frá því í júlí. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist næst­stærstur með 26,8 pró­sent og bætir við sig 1,4 pró­sentu­stigum. 

Mið­flokk­ur­inn mælist með 15,6 pró­senta fylgi og Viðreisn með 9,7 pró­sent. Viðreisn tapar 1,7 pró­sentu­stigum frá júlí og er það stærsta breyt­ingin á fylgi ein­stakra flokka milli mán­aða.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 5,5 pró­senta fylgi og Flokkur fólks­ins með 4,8 pró­sent. Vinstri græn, sem eiga ekki full­trúa á Alþingi eftir síð­ustu kosn­ingar, mæl­ast með 3,6 pró­sent og Sós­í­alista­flokkur Íslands, sem aldrei hefur átt þing­full­trúa, með 2,4 pró­sent.

Flokkur fólksins langt undir kjörfylgi

Rík­is­stjórn Kristrúnar Frosta­dóttur er mynduð af Sam­fylk­ing­unni, Viðreisn og Flokki fólks­ins. Saman mæl­ast flokk­arnir nú með 44,1 pró­sents fylgi. Það er svipað og í júlí, þegar sam­an­lagt fylgi þeirra var 44,5 pró­sent, en tals­vert minna en sam­an­lagt kjör­fylgi flokk­anna í þing­kosn­ing­unum 2024, sem var rúm­lega 50 pró­sent. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár