Google hefur nú breytt heiti Ontario-vatns í „Ameríkuvatn“ á kortum sem notendur í Bandaríkjunum sjá, frá og með í dag, eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti að hann hefði endurnefnt vatnið. Kanadískur ráðamaður sagði spennuna milli nágrannaríkjanna vera „algjörlega öfugsnúna“.
Notendur í Kanada munu áfram sjá vatnið merkt sem Ontariovatn í símum sínum og tölvum, að sögn bandaríska tæknirisans. Heitið á rætur að rekja til tungumáls frumbyggja og hefur verið notað frá 17. öld.
Togstreitan um nafngiftina er nýjasta birtingarmynd stefnu Trumps undir kjörorðinu „Bandaríkin fyrst“. Bandamennirnir til langs tíma hafa upp á síðkastið hert tollastríð sín á milli og bæði stjórnin í Washington og Kanadastjórn í Ottawa lagt gagnkvæma hefndartolla á innflutning.
Trump hóf nýja atlögu að Kanada um helgina og beindi spjótum sínum að bílaiðnaðinum, þrátt fyrir að bílaframleiðsla ríkjanna sé nátengd og margir kanadískir íhlutir notaðir í bíla sem framleiddir …























































Athugasemdir