Google maps breytir Ontario-vatni í Lake America

Banda­rískir not­endur hafa fengið nýtt heiti á Ontario-vatn eftir að for­set­inn breytti nafni þess til að hefna sín á Kanada. „Ég vil ekk­ert kanadískt,“ segir Trump.

Breytti örnefni í hefndarskyni
Breytti örnefni í hefnd­ar­skyni Donald Trump Banda­ríkja­for­seti var ósáttur við ákvörðun Kana­da­stjórnar að leggja gagn­kvæma tolla í stað þess að sam­þykkja samn­ing, að hann breytti nafni Ontario-vatns á landa­mærum land­anna. Mynd: AFP

Google hefur nú breytt heiti Ontario-vatns í „Amer­íku­vatn“ á kortum sem not­endur í Banda­ríkj­unum sjá, frá og með í dag, eftir að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti til­kynnti að hann hefði end­ur­nefnt vatnið. Kanadískur ráða­maður sagði spenn­una milli nágranna­ríkj­anna vera „algjör­lega öfug­snúna“.

Notendur í Kanada munu áfram sjá vatnið merkt sem Ont­ariovatn í símum sínum og tölvum, að sögn banda­ríska tækniris­ans. Heitið á rætur að rekja til tungu­máls frum­byggja og hefur verið notað frá 17. öld.

Tog­streitan um nafn­gift­ina er nýjasta birt­ing­ar­mynd stefnu Trumps undir kjör­orð­inu „Banda­ríkin fyrst“. Banda­menn­irnir til langs tíma hafa upp á síðkastið hert tolla­stríð sín á milli og bæði stjórnin í Washington og Kana­da­stjórn í Ottawa lagt gagn­kvæma hefnd­ar­tolla á inn­flutn­ing.

Trump hóf nýja atlögu að Kanada um helg­ina og beindi spjótum sínum að bíla­iðn­að­inum, þrátt fyrir að bíla­fram­leiðsla ríkj­anna sé nátengd og margir kanadískir íhlutir not­aðir í bíla sem fram­leiddir eru í Banda­ríkj­unum.

…
Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Allt til heiðurs Amerigo Vespucci sæfara. Reyndar hefur hann aðallega kannað það sem nú heitir Suður-Ameríka og líklega aldrei komið til Kanada en það veit þetta fáfróða fífl örugglega ekki.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár