„Mér fannst ótrúlega óforskömmuð Brexit-barátta rekin af Áfram Íslands og það verður að skoða það eftir kosningar, og draga þetta fólk til ábyrgðar fyrir orð sín,“ sagði Gauti B. Eggertsson, hagfræðingur og prófessor hjá Brown-háskólanum í Bandaríkjunum. Hann hefur beitt sér í ESB-umræðunni, þá helst með greinaskrifum. Hann er jafnframt bróðir Dags B. Eggertssonar, þingmanns Samfylkingarinnar.
Heimildin ræddi við hann í gær eftir að fyrstu tölur lágu fyrir og óljóst hvernig úrslitin yrðu. Ljóst er að Ísland mun ekki taka aftur upp aðildarviðræður við ESB samkvæmt niðurstöðum kosninganna þar sem rétt rúmur meirihluti kaus gegn áframhaldandi aðildarviðræðum.
Sturtað peningum í auglýsingar
„Rangfærslurnar héldu bara áfram og lygarnar urðu bara stærri og þeim var beint til unga fólksins sem var ginnkeyptara fyrir þeim,“ heldur Gauti áfram.
Spurður hvort fólk væri að falla fyrir slíkum ósannindum svarar Gauti: „Við sjáum til. Það virtist vera mikil sveifla á yngra fólkinu og það er …


















































Í ljósi niðurstöðunnar getum við kannski gert okkur vonir um að í náinni frámtíð fáum við þaðan gagnlegar reglur til að halda aftur af peningalýðræði hagsmunaaflanna.