Fasteignafélagið Heimar hf. hagnaðist um 4,6 milljarða króna á fyrri helmingi ársins, sem er hækkun úr 1,1 milljarði króna frá sama tímabili í fyrra.
Stór hluti hagnaðarins er matsbreyting fjárfestingaeigna, sem nam 7,7 milljörðum króna.
Alls voru rekstrartekjur Heima 8,7 milljarðar króna. Þær hækkuðu um 16% á milli ára. Leiðrétt fyrir verðbólgu og breytingar á eignasafni var raunvöxtur leigutekna 3,1% á milli ára.
„Rekstur Heima er stöðugur og tekjugrunnur félagsins traustur. Útleiguhlutfall er áfram hátt, eða 96%, og 42% leigutekna koma frá opinberum aðilum og skráðum félögum,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima hf., í yfirlýsingu um afkomuna.
Virði fasteigna Heima er metið á um 237 milljarða króna, en vaxtaberandi skuldir eru 146 milljarðar króna. Fjárhagsstaða félagsins er sögð sterk og eiginfjárhlutfall 32,1%.
Félagið átti 4,8 milljarða króna í handbæru fé í lok tímabilsins.
Á sama tíma og fasteignafélög sýna mikinn hagnað hækkaði vísitala neysluverðs um 0,2% í ágúst, …


















































Athugasemdir